Að sögn Jóhönnu Margrétar Gísladóttur, framkvæmdastjóra sjónvarpssviðs 365 miðla, er um nokkuð einstakt samstarf að ræða.
„Þetta er rosalega spennandi verkefni,“ segir Jóhanna Margrét.
„Mér skilst að þetta sé í fyrsta sinn sem mynd af þessari stærðargráðu er frumsýnd í íslensku sjónvarpi.“

„Við erum bara spennt fyrir því að sjá hvernig þetta verkefni gengur,“ segir hún.
„Þetta er náttúrulega bara hluti af öflugri, innlendri dagskrárgerð hjá Stöð 2.“
Það er Björn Hlynur Haraldsson sem leikstýrir myndinni en handritið er byggt á leikriti hans, Dubbeldusch, sem Vesturport setti fyrst upp árið 2008.
Sagan er gamansöm með alvarlegum undirtón og fjallar um hefðbundna íslenska fjölskyldu í úthverfi Reykjavíkur sem þarf að takast á við gamalt leyndarmál, sem einn daginn bankar upp á og þá breytist allt.

„Myndin er búin að vera lengi í þróun hjá okkur í Vesturporti og hún ætti að höfða til allra,“ segir Rakel.
Hún bendir á að hægt að sé að fylgjast með tökum á Facebook-síðunni Blóðberg og undir #bloðberg á Instagram.