Bíó og sjónvarp

Boyhood með þrenn verðlaun

Patricia Arquette ásamt listamanninum Eric White.
Patricia Arquette ásamt listamanninum Eric White. Vísir/Getty
Kvikmynd Richards Linklater, Boyhood, hlaut þrenn verðlaun á hátíðinni New York Film Critics Circle sem var haldin fyrir skömmu.

Ethan Hawke og Patricia Arquette sem bæði leika í myndinni voru í góðum gír á hátíðinni. Hawke las upp úr gagnrýni blaðsins New York Times um frammistöðu sína, sem blaðamanni þótti ekki sérlega góð, og Arquette mætti upp á svið með drykk í hendi þegar hún tók á móti verðlaunum sem besta leikkonan í aukahlutverki. „Ég mætti með viskí með mér vegna þess að ég er leikari af fjórðu kynslóð,“ sagði hún.

Jake Gyllenhaal afhenti Cotillard verðlaun sem besta leikkonan.
Grínistinn Jon Stewart afhenti framleiðendum Boyhood svo verðlaun fyrir bestu myndina. 

Boyhood hefur unnið til fjölda verðlauna að undanförnu og er talin líkleg til að fá tilnefningu til Óskarverðlaunanna. Hún hefur jafnframt verið tilnefnd til fimm Golden Globe-verðlauna en þau verða afhent næstkomandi sunnudagskvöld. Aðalleikarinn Ellar Coltrane var sex ára þegar leikstjórinn Linklater réði hann í hlutverkið en átján ára þegar myndin kláraðist.

John Lithgow hrósaði Timothy Spall fyrir frammistöðu sína.
Timothy Spall var kjörinn besti leikarinn fyrir hlutverk sitt sem málarinn JMW Turner í myndinni Mr. Turner og Jake Gyllenhaal afhenti Marion Cotillard verðlaun sem besta leikkonan fyrir hlutverk hennar í The Immigrant and Two Days, One Night.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.