Napoli slátraði AC Milan á San Siro | Öll úrslit dagsins 4. október 2015 20:45 Lorenzo Insigne fagnar marki á San Siro. vísir/getty
Napoli einfaldlega valtaði yfir AC Milan á San Siro í kvöld en leiknum lauk með 4-0 sigri Napoli en með sigrinum skaust Napoli upp í 6. sæti. Napoli hefur nú ekki tapað leik í ítölsku deildinni frá óvæntu tapi gegn Sassuolo í fyrstu umferð. Gestirnir komust yfir á 13. mínútu en þar var að verki Allan eftir undirbúning Lorenzo Insigne. Isigne komst sjálfur á blað með tveimur mörkum í seinni hálfleik en Rodrigo Ely, varnarmaður AC Milan, gerði út um leikinn er hann sendi boltann í eigið net á 77. mínútu. Var þetta annað tap AC Milan í röð en félagið er í 11. sæti með 9 stig eftir 7 leiki. Juventus lenti í töluverðum vandræðum gegn botnliði Bologna en Anthony Mounier kom Bologna yfir á Juventus Stadium á 5. mínútu. Alvaro Moratá jafnaði metin fyrir Juventus um miðbik seinni hálfleiks en leikmenn Juventus voru með mikla yfirburði í seinni hálfleik. Pablo Dybala kom Juventus yfir af vítapunktinum á 53. mínútu og bætti Sami Khedira við þriðja marki Juventus og gerði út um leikinn á 63. mínútu. Var þetta fyrsta mark hans í herbúðum Juventus eftir að hafa gengið til liðs við ítölsku meistarana frá Real Madrid í sumar. Þá náði Inter aðeins jafntefli gegn Sampdoria á útivelli, Roma vann 4-2 sigur á Palermo á útivelli og Fiorentina vann 3-0 sigur á Atalanta á heimavelli en öll úrslit dagsins má sjá hér fyrir neðan.Öll úrslit dagsins: Empoli 1-0 Sassuolo Palermo 2-4 AS Roma Sampdoria 1-1 Inter Udinese 1-1 Genoa Juventus 3-1 Bologna Lazio 2-0 Frosinone AC Milan 0-4 Napoli Fiorentina 3-0 Atalanta
Ítalski boltinn Mest lesið Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Íslenski boltinn Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold Fótbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti „Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Körfubolti Fleiri fréttir Rekinn úr íranska landsliðinu David og D-deildarleikmaður á meðal þeirra sem mæta Íslandi Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold FIFA refsar Ísraelum en þó aðeins með sekt Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Háttsettur meðlimur CAF fordæmir „viðurstyggilega“ ákvörðun Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Freyr stýrði Brann inn í undanúrslit bikarsins Nottingham Forest og Crystal Palace fóru bæði áfram Albert með stoðsendingu þegar Fiorentina fór áfram Foringinn fagnar endurkomu Norður-Kóreu á HM „Við sniðgöngum Bandaríkin en ekki HM“ Messi kominn í 900 mörk Sögulegur samningur Víkinga Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Blindröðun í beinni: Sígó í stúkunni og sjúkur snúningur Kane Deilan leyst og spilað í Boston Mörkin í Meistaradeild: Sjáðu stóru liðin setja upp sýningu Vill ekki falla í sömu gryfju og Svíar Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur Ljóstruðu óvart upp um óvænt val Heimis Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Missti næstum því fingur á móti Liverpool „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ „Við hefðum getað unnið 10-0“ Sjá meira