Dagný á bara eftir að skrifa undir við þýska félagið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2015 06:30 Dagný á að baki 41 landsleik. vísir/Andri marinó
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er á leið í þýsku úrvalsdeildina en hún hefur komist að samkomulag við lið þar í landi. Ferli hennar í bandaríska háskólaboltanum lauk með meistaratitli Florida State-liðsins í haust. „Þetta er lið sem er í efstu deild en þýska deildin er ein sú allra sterkasta í heimi,“ sagði Dagný í samtali við Fréttablaðið í gær. „Samkomulagið er í höfn en undirskriftina vantar og bað liðið mig um að segja ekki meira í bili.“ Dagný var á leið til Bandaríkjanna þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hennar í gær en hún verður viðstödd verðlaunaafhendingu fyrir tímabilið í NCAA-deildinni en hún var fyrirliði liðs Florida State. Berglind Björg Þorvaldsdóttir, sem gekk til liðs við Fylki í vikunni, lék einnig í sama skóla. Hún er ein þriggja sem eru tilnefndar sem besti leikmaður tímabilsins en verðlaunaathöfnin fer fram í St. Louis. „Hinar tvær eru í bandaríska landsliðinu og önnur þeirra vann þessi verðlaun í fyrra. En ég vona auðvitað að allt þetta ferðalag verði ekki til einskis og að ég vinni þetta,“ segir hún í léttum dúr. Eftir verðlaunaafhendinguna heldur hún til Þýskalands þar sem hún mun ganga formlega frá samningum við sitt nýja félag.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira