Kvikmyndin Dawn of the Planet of the Apes fékk flestar tilnefningar til þrettándu VES-verðlaunanna sem verða afhent á Beverly Hilton hótelinu 4. febrúar, eða fimm talsins.
Það er Félag tæknibrellna í Bandaríkjunum, Visual Effects Society, sem stendur fyrir verðlaununum. Tvær af tilnefningunum voru fyrir apana í myndinni, auk þess sem myndin fékk m.a. eina tilnefningu fyrir kvikmyndatöku í sýndarveruleika og aðra fyrir tæknibrellur, líkt og veitt eru verðlaun fyrir á Óskarsverðlaununum.
Aðrar myndir sem voru tilnefndar í tæknibrelluflokknum voru Guardians of the Galaxy, Interstellar, Maleficent, The Hobbit: The Battle of the Five Armies og X-Men: Days of Future Passed. Allar þessar myndir eru á lista yfir þær sem eiga möguleika á Óskarstilnefningum, sem verða tilkynntar í dag. Þær myndir sem fengu tilnefningar í aðstoðar-brelluflokki voru Birdman, Divergent, The Grand Budapest Hotel, The Imitation Game og Unbroken.
Teiknimyndirnar sem fengu eftirtaldar myndir margar tilnefningar: Big Hero 6, How to Train Your Dragon 2, The Boxtrolls, The Lego Movie og Rio 2.
Í sjónvarpsflokki voru tilnefndir þættirnir American Horror Story: Freak Show, Game of Thrones, The Knick, Black Sails og Penny Dreadful.
