Bíó og sjónvarp

Vill leika Pútín

Stefán Ó. Jónsson skrifar
DiCaprio virðist hafa mikinn áhuga á Pútín, að minnsta kosti sem leiklistaráskorun.
DiCaprio virðist hafa mikinn áhuga á Pútín, að minnsta kosti sem leiklistaráskorun. vísir/getty
Stórleikarinn Leonardo DiCaprio segist hafa mikinn áhuga á því að leika Vladimir Pútín Rússlandsforseta – ef honum gæfist tækifæri til. Ef honum stæði það ekki til boða segist hann þó ekkert hafa á móti því að leika annað hvort Lenín eða Raspútín.

Þetta kom fram í samtali leikarans við þýska dablaðið Welt á dögunum. „Pútín væri mjög, mjög, mjög áhugaverður. Mig langar að leika hann,“ sagði hjartaknúsarinn DiCaprio sem sex sinnum hefur hlotið Óskarstilnefningu.

Í viðtalinu við Welt rifjaði hann upp fund þeirra Pútíns árið 2010 þegar DiCaprio sótti alþjóðlega ráðstefnu í St. Pétursborg um verndun tígrisdýra.

„Sjóðurinn minn er með nokkur verkefni í gangi sem miða að því að styðja fjárhagslega við verndun þessara viltu katta [síberíutígra],“ sagði DiCaprio. „Ég og Pútín töluðum einungis um þessar mögnuðu skepnur, ekki um stjórnmál.“

Þá sagði hann að aðrir rússneskir framámenn heilli hann og að hann hefði ekkert á móti því að bregða sér í þeirra líki einn daginn. Þeirra á meðal eru leiðtogi verkamannabyltingarinnar Vladimír Lenín og Raspútín sem vann náið með rússnesku keisarafjölskyldunni í upphafi 20. aldar.

Leonardo fékk á dögunum Golden Globe-verðlaunin fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Revenant og hefur hann einnig verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir sama hlutverk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.