Bíó og sjónvarp

Max von Sydow í Game of Thrones

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Wright og Sydow í hlutverkum sínum í næstu seríu Game of Thrones.
Wright og Sydow í hlutverkum sínum í næstu seríu Game of Thrones. Visir/HBO
Orðrómar um að leikarinn Max von Sydow fari með hlutverk í sjöttu seríu Game of Thrones þáttanna eru sannir. Leikarinn góðkunni mun fara með hlutverk þriggja-auga-hrafnsins sem aðdáendur muna eftir úr lok fjórðu seríunnar þegar Bran Stark, sem leikinn er af Isaac Hempstead Wright, komst loks á leiðarenda norðan megin veggjarins mikla.

Bran var svo fjarri góðu gamni í fimmtu seríu en framleiðendur þáttanna hafa gefið það út að persónan fari með lykilhlutverk í næstu seríu. Þar mun Sydow leika lærifaðir Bran sem kennir honum að beisla ofurnáttúrulega hæfileika sína.

Á ljósmynd sem birt hefur verið úr næstu seríu má sjá Sydow og Wright í hlutverkum sínum. Athygli vekur að það virðist vera að þeir séu staddir hjá Næturvaktinni við vegginn mikla. Glöggir hafa líka tekið eftir því að svo virðist sem Bran standi uppréttur en persónan hefur verið lömuð frá fyrstu seríu.

Í fjórðu seríu var það annar leikari sem fór með hlutverk hrafnsins en Sydow þykir góð viðbót við leikarahópinn. Hann er líklegast þekktastur fyrir hlutverk sín í The Exorcist, Minority Report og nú síðast í Star Wars: The Force Awakens.

Aðdáendur HBO þáttanna verða þó að bíða til 25. apríl til að fá svör við öllum helstu spurningum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.