Daði framlengir við Val Anton Ingi Leifsson skrifar 17. apríl 2016 12:30 Ólafur Jóhannesson er þjálfari Vals. vísir/getty
Daði Bergsson hefur framlengt sinn við Val til ársins 2018, en Daði gekk í raðir Vals árið 2014 frá NEC Nijmegen í Hollandi. Daði, sem er 21 árs gamall, hefur spilað 48 meistaraflokksleiki og skorað í þeim fjögur mörk. Hann var lánaður til Leiknis á síðasta tímabili, en hann var að glíma við meiðsli. „Ég ákvað að framlengja vegna þess að mér finnst það vera gott skref fyrir mig núna og fyrir framtíðina. Formið mitt er frábært núna enda hef ég æft stíft allt undirbúningstímabilið og hef haldist heill,” sagði Daði við heimasíðu Vals. „Ég er mjög spenntur fyrir sumrinu og geri ég miklar kröfur til mín og liðsfélagana mína. Liðstyrkurinn sem við erum búnir að fá er mjög góður og hafa þeir allir komið flottir inn í liðið, spilamennska liðsins hefur verið virkilega góð og ég veit að við erum tilbúnir í slaginn.” Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, er ánægður með að Daði verði áfram í herbúðum Vals næstu árin. „ Daði kom auðvitað til Vals 2014 gríðarlega efnilegur og sýndi flotta takta strax. Hann kláraði það tímabil svo í meiðslum. Hann missti allt undirbúningstímabilið í fyrra og komst aldrei í leikæfingu og fór á lán til Leiknis,” sagði Sigurbjörn og bætti við að lokum: „Strax í haust var Daði strax að nálgast sinn leik og hefur staðið sig mjög vel allt undirbúningstímabilið. Hann er áræðinn, brellinn, fljótur og getur verið stórhættulegur.” Pepsi-deild karla hefst eftir tvær vikur og Valsmenn fá Fjölnismenn í heimsókn í fyrsta leik á teppið á Hlíðarenda.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Handbolti Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Enski boltinn Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Enski boltinn Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Enski boltinn Börsungar úr leik þrátt fyrir öruggan sigur í kvöld Fótbolti Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Fleiri fréttir Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Sjá meira