Söguþráður myndarinnar kannast eflaust flestir aðdáendur hryllingsmynda við, hópur unglinga ákveður að kanna uppruna draugasögu úti í miðjum skógi. Allt er þetta tekið upp á iPhone-síma með tilheyrandi hristingi og reynt að gefa sögunni þannig raunverulegan blæ.
Eins og Vulture bendir á er þetta form ekki nýtt og margar myndir litið dagsins ljós í svokölluðu „found footage“-formi frá því The Blair Witch Project sló í gegn árið 1999. Það sem er hins vegar nýtt við þessa mynd, líkt og áður sagði, er að hún var frumsýnd á Snapchat-reikningi YouTube-stjörnunnar Andreu Russet. 2,5 milljónir fylgja henni á YouTube og hundruð þúsunda á Snapchat.
Áður en myndin var sett á Vimeo var búið að horfa á hana 100 milljón sinnum á Snapchat. Í umfjöllun Vulture kemur fram að Sickhouse er sannarlega eftirbátur Blair Witch Project en því er þó haldið fram að hún nái að fanga maníuna í kringum samfélagsmiðla á borð við Snapchat þar sem stöðugt er verið að fylgjast með öðrum.
Hægt er að sjá brot úr myndinni hér fyrir neðan:
SICKHOUSE -- The Made for Mobile Movie from Indigenous Media on Vimeo.