Bíó og sjónvarp

Strax byrjaðir að hita upp fyrir næstu þáttaröð

Samúel Karl Ólason skrifar
Framleiðendur Game of Thrones eru strax byrjaðir að hita upp fyrir sjöundu þáttaröð. Einungis nokkrar vikur eru frá því að sjöttu þáttaröð lauk og tæpt ár í að sú sjöunda byrjar.

Undir lok þátttöku Game of Thrones á Comic-Con í San Diego birtu framleiðendur þáttanna tveggja mínútna myndband á Twitter. Að mestu er verið að sýna frá gerð vopna og klæðnaðar, en yfir það eru spilaðar setningar úr sjöttu þáttaröð.

Myndbandið endar á því að handrit fyrir fyrsta þátt næstu þáttaraðar er kastað á borð og Tyrion Lannister segir: „Welcome homemy Queen“. Þá stendur að framleiðsla þáttaraðarinnar sé hafin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.