Ræða Trump stöðvuð í kirkju svartra Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2016 12:37 Donald Trump í kirkjunni. Vísir/AFP
Forsetaframbjóðandinn Donald Trump var stöðvaður af presti í miðri ræðu í gær. Honum hafði verið boðið að taka til máls í kirkju svartra í Flint í Michigan þar sem hann var að kynna forsetaframboð sitt. Skömmu eftir að ræða Trump hóst, fór hann að gagnrýna Hillary Clinton fyrir aðkomu hennar að viðskiptasamningum og stöðvaði presturinn hann.Green Timmons greip fram í fyrir honum og sagði að honum hefði ekki verið boðið í kirkjuna til að ræða stjórnmál. Honum hefði verið boðið til að ræða mengunina í neysluvatni íbúa Flint.Sjá einnig: Ameríski draumurinn sem varð að eitruðu drykkjarvatni Bæklingi var dreift til kirkjugesta þar sem fram kom að vera Trump í kirkjunni væri ekki til marks um að kirkjan hefði veitt forsetaframbjóðandanum stuðning. Ræða Trump var þó ekki mikið lengri þar sem gestir fóru að kalla spurningar til Trump og gagnrýna hann. Ein kona spurði hann út í fregnir af því að hann hefði komið illa fram við þeldökka leigjendur sína. Það sagðist Trump aldrei hafa gert. Þá segir New York Times frá því að önnur kona hafi elt hann út úr kirkjunni og spurt hann út í ummæli hans: „Hverju hafið þið að tapa?“, þar sem hann hefur reynt að ná til þeldökkra í Bandaríkjunum. Konan vildi fá að vita hvað hann ætti við með þeirri spurningu sem hann hefur ítrekað spurt á undanförnum misserum.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira