Aðalleikarar Hjartasteins verðlaunaðir í Marokkó Birgir Olgeirsson skrifar 11. desember 2016 21:15 Guðmundur Arnar Guðmundsson, leikstjóri og handritshöfundur Hjartasteins, ásamt Baldri Einarssyni og Blæ Hinrikssyni. Vísir/EPA
Leikararnir Baldur Einarsson og Blær Hinriksson voru valdir bestu leikararnir á kvikmyndahátíðinni Marrakech í Marokkó um helgina fyrir hlutverk sín í kvikmyndinni Hjartasteini. Hjartasteinn gerist yfir sumar í litlu sjávarþorpi á Íslandi. Sagan fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina. Tökur fóru fram haustið 2015 í Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, Vopnafirði og Dyrhólaey.Baldur og Blær með verðlaunin.Vísir/EPAGuðmundur Arnar Guðmundsson leikstýrir og skrifar handritið að Hjartasteini, en þetta er hans fyrsta kvikmynd í fullri lengd. Hann hefur hingað til skrifað og leikstýrt stuttmyndum - til að mynda gerði hann hina margverðlaunuðu stuttmynd Hvalfjörður sem hefur alls hlotið 45 verðlaun á kvikmyndahátíðum þar á meðal dómaraverðlaun í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2013. Hjartasteinn hefur undanfarið sópað að sér verðlaunum á kvikmyndahátíðum en hún vann til að mynda Q Hugo verðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Chicago í Bandaríkjunum í október síðastliðnum. Áður hafði myndin unnið til þrennra verðlauna í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Varsjá í Póllandi. Guðmundur Arnar var valinn besti leikstjórinn, Baldur Einarsson hlaut sérstök dómnefndarverðlaun fyrir leik sinn í myndinni og myndin vann til Kirkjuverðlauna hátíðarinnar. Hjartasteinn var heimsfrumsýnd í Venice Days dagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum í september og vann þar til Queer Lion verðlauna hátíðarinnar. Eftir það hefur hún tekið þátt á fjölda virtra alþjóðlegra kvikmyndahátíða, m.a. í Toronto í Kanada, Busan í Suður Kóreu og Gent í Belgíu.
Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Sigurför Hjartasteins Kvikmyndin Hjartasteinn hefur farið sannkallaða sigurför um heiminn og raðað inn verðlaunum á hverri kvikmyndahátiðinni eftir annari. Lífið tekur hér saman verðlaunin og birtir nokkrar myndir af hátíðunum sem eru orðnar ansi margar. 16. nóvember 2016 11:00 Fengu standandi lófaklapp á frumsýningu Hjartasteins í Feneyjum: Allir krakkaleikarnir viðstaddir Um er að ræða fyrstu íslensku kvikmyndina sem keppir til verðlauna á einni allra virtustu og elstu kvikmyndahátíð heims. 1. september 2016 16:30 Hjartasteinn vann til verðlauna í Feneyjum Kvikmyndin vann sömu verðlaun og The Danish Girl gerði á sínum tíma. 10. september 2016 22:18 Hjartasteinn fékk þrenn verðlaun í Varsjá Fyrsta kvikmynd leikstjórans Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd var sigursæl á kvikmyndahátíðinni í Varsjá um helgina. Myndin verður frumsýnd hér á Íslandi í kringum áramótin. 18. október 2016 11:00 Sjáðu fyrsta brotið úr Hjartasteini: Örlagarík þroskasaga um sterka vináttu tveggja drengja Kvikmyndin Hjartasteinn, fyrsta mynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd, hefur farið sigurför um kvikmyndahátíðir að undanförnu og hefur hún allstaðar fengið frábærar viðtökur. 13. október 2016 16:30 Hjartasteinn fær enn ein verðlaunin Hjartasteinn, fyrsta kvikmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd, hlaut Gold Q Hugo verðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Chicago í Bandaríkjunum um helgina. 26. október 2016 13:30 Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Fleiri fréttir Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Sjá meira
Sigurför Hjartasteins Kvikmyndin Hjartasteinn hefur farið sannkallaða sigurför um heiminn og raðað inn verðlaunum á hverri kvikmyndahátiðinni eftir annari. Lífið tekur hér saman verðlaunin og birtir nokkrar myndir af hátíðunum sem eru orðnar ansi margar. 16. nóvember 2016 11:00
Fengu standandi lófaklapp á frumsýningu Hjartasteins í Feneyjum: Allir krakkaleikarnir viðstaddir Um er að ræða fyrstu íslensku kvikmyndina sem keppir til verðlauna á einni allra virtustu og elstu kvikmyndahátíð heims. 1. september 2016 16:30
Hjartasteinn vann til verðlauna í Feneyjum Kvikmyndin vann sömu verðlaun og The Danish Girl gerði á sínum tíma. 10. september 2016 22:18
Hjartasteinn fékk þrenn verðlaun í Varsjá Fyrsta kvikmynd leikstjórans Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd var sigursæl á kvikmyndahátíðinni í Varsjá um helgina. Myndin verður frumsýnd hér á Íslandi í kringum áramótin. 18. október 2016 11:00
Sjáðu fyrsta brotið úr Hjartasteini: Örlagarík þroskasaga um sterka vináttu tveggja drengja Kvikmyndin Hjartasteinn, fyrsta mynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd, hefur farið sigurför um kvikmyndahátíðir að undanförnu og hefur hún allstaðar fengið frábærar viðtökur. 13. október 2016 16:30
Hjartasteinn fær enn ein verðlaunin Hjartasteinn, fyrsta kvikmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd, hlaut Gold Q Hugo verðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Chicago í Bandaríkjunum um helgina. 26. október 2016 13:30