Ráðherrakapallinn hefur verið lagður Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 21. nóvember 2017 06:00 Fundað var frá morgni til kvölds í ráðherrabústaðnum. Formennirnir virtust vonglaðir í dagrenningu. vísir/ernir
Fundað var um stjórnarmyndun í ráðherrabústaðnum í gær. Þingflokkar koma nú að vinnunni í meiri mæli en áður og leitað hefur verið eftir athugasemdum og sjónarmiðum frá þingmönnum flokkanna. Búast má við að vinna við að fínpússa málefnasamning taki einhverja daga í viðbót og þá tekur verkaskipting milli flokkanna við og að lokum þarf hver og einn formaður að gera tillögu um ráðherraefni flokkanna. Ýmsar hefðir og venjur hafa myndast um verkaskiptingu flokka en þær taka þó breytingum eftir því hvað efst er á baugi hverju sinni. Fyrir bankahrunið fékk sá flokkur, sem ekki skipaði forsætisráðuneytið, utanríkismálin í sinn hlut, en á undanförnum árum hafa fjármálin ekki þótt síður mikilvæg. Flokkar horfa einnig gjarnan til þess hvort og hve mikið er á döfinni á ólíkum málefnasviðum ráðuneytanna. Heilbrigðisráðuneytið þykir til dæmis ekki fýsilegt nema setja eigi aukið fé í heilbrigðismálin. Samgöngumálin sömuleiðis. Flokkarnir hafa einnig svipuð sjónarmið þegar kemur að vali á ráðherraefnum. Tekið er mið af gengi ráðherraefna í kosningum og prófkjörum, þing- og ráðherrareynslu. Þá er einnig horft til þess af hvaða kyni ráðherraefni eru og úr hvaða kjördæmi. Ekki þykir til dæmis boðlegt að öll ráðherraefni flokks komi af suðvesturhorninu. Auk forsætisráðuneytisins fyrir Katrínu Jakobsdóttur eru Vinstri græn sögð leggja áherslu á að fá heilbrigðismálin. Katrín og Svandís eru báðar óumdeild ráðherraefni fyrir VG. Þær eru báðar úr Reykjavíkurkjördæmum og því má ætla að þriðja ráðherraefni flokksins komi af landsbyggðinni. Steingrímur J. Sigfússon mun vera óumdeildur sem forseti Alþingis og verður því ekki ráðherra fái Vinstri græn embætti þingforsetans. Ekki er ólíklegt að Lilja Rafney Magnúsdóttir verði ráðherra og fái umhverfisráðuneytið. Sjálfstæðismenn leggja áherslu á að fá fjármálin og utanríkismálin og myndu Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Þór Þórðarson fara í þau ráðuneyti. Þá má einnig ætla að Sjálfstæðismenn leggi áherslu á að fá dómsmálin að venju. Samkvæmt heimildum blaðsins er ólíklegt að Sigríður Andersen verði tekin úr ríkisstjórn, þrátt fyrir einhvern þrýsting þar að lútandi úr öðrum flokkum. Í baklandi Sjálfstæðisflokksins gera menn ráð fyrir að hún verði áfram í dómsmálaráðuneytinu og að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verði áfram í sínu ráðuneyti. Öll þessi ráðherraefni eru fyrstu þingmenn sinna kjördæma að Þórdísi Kolbrúnu undanskilinni, sem var önnur á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi á eftir Haraldi Benediktssyni. Enn hefur enginn verið nefndur úr Suðurkjördæmi eða Norðausturkjördæmi. Því má ætla að Kristján Þór Júlíusson og Páll Magnússon muni þurfa að takast á um síðasta ráðherrastól flokksins og Jón Gunnarsson víki úr ríkisstjórn. Lilja Alfreðsdóttir er sögð hafa hug á menntamálunum, fái hún hvorki efnahagsmál né utanríkismál. Þá herma heimildir Fréttablaðsins að Sigurður Ingi Jóhannsson sé reiðubúinn að taka að sér sjó og land. Þriðji ráðherra flokksins verður væntanlega annaðhvort að norðan eða vestan. Þórunn Egilsdóttir er þó talin líklegri en Ásmundur Einar Daðason. Gert er ráð fyrir að málefnasamningur verði borinn undir þingflokka ásamt verkaskiptingu flokkanna og tillögu formanns um ráðherraefni hvers flokks síðar í vikunni. Samþykki allir þingflokkar stjórnarsáttmála yrði strax í kjölfar þeirra boðað til funda í viðeigandi stofnunum flokkanna með tveggja daga fyrirvara. Er nú miðað við að fundir þessir geti farið fram um næstu helgi. Verði ríkisstjórnarsamstarf samþykkt í stofnunum allra flokka við það tækifæri, má ætla að nýr forsætisráðherra óski eftir því að þing verði kallað saman 4. eða 5. desember og þá hefði ný ríkisstjórn viku til að setja mark sitt á fjárlög áður en leggja þarf þau fram við upphaf þings.
Alþingi Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira