Hlynur Bæringsson opnar veitingastað í Garðabæ Birgir Olgeirsson skrifar 9. febrúar 2018 21:00 Félagarnir þrír sem eru að opna staðinn, Ricardo Melo, Hlynur Bæringsson og Stefán Magnússon. Vísir/Hanna
Körfuboltamaðurinn Hlynur Bæringsson hefur undanfarna mánuði verið að bólakafi við að koma nýjum veitingastað í Garðabæ á laggirnar. Staðurinn heitir Nü Asian Fusion og verður eins og nafnið gefur til kynna með sambland af asískum réttum á boðstólum. „Við verðum ekki með sushi,“ svarar Hlynur þegar hann er spurður hvað verður boðið upp á veitingastaðnum. „Við verðum hins vegar með salöt, tærar súpur, lax, hnetusteik, Jungle Curry, Malasíuþorsk, Pekingönd og annað í ætt við það,“ segir Hlynur. Prufukeyrsla á staðnum mun fara fram yfir helgina en stefnt er að opnun hans á Garðatorgi á mánudag eða þriðjudag. Spurður hvort hann muni þjóna til borðs og standa vaktina á barnum segir Hlynur ekki annað koma til greina af sinni hálfu. „Annars væri ekkert gaman af þessu.“Eitthvað hlaut að taka við Líkt og fyrr segir er Hlynur Bæringsson körfuknattleiksmaður og verið á meðal allra bestu leikmanna Íslands í áraraðir. Hann hefur verið leiðtogi íslenska landsliðsins í körfubolta, leiddi lið Snæfells til Íslandsmeistaratitils árið 2010, spilaði með Sundsvall Dragons í sænsku deildinni í 6 ár við góðan orðstír og leikur nú með liði Stjörnunnar í Garðabæ.Hlynur Bæringsson í leik með Stjörnunni.Vísir/EyþórHann segir að það hafi ekki verið mikið mál fyrir sig að samþætta körfuknattleikinn við undirbúning veitingastaðarins og komi ekki til með að verða vandamál þegar staðurinn verður kominn á fullt í rekstri, enda með gott fólk með sér í þessu verkefni. Hlynur verður 36 ára á árinu og sér því fyrir endann á ferli hans. „Það var alveg kominn tími til að kanna nýjar lendur eftir að hafa verið í hlutverki körfuknattleiksmanns síðastliðin 10 – 15 árin og ég held að það verði ágætt. Auðvitað breytist lífið eitthvað með því en það verður bara spennandi. Eitthvað hlaut að taka við,“ segir Hlynur.Hlynur Bæringsson ætlar að þjóna til borðs á nýja staðnum ásamt því að standa vaktina á barnum. Vísir/HannaMikil reynsla og þekking Hann segir Stefán Magnússon, eiganda Mathúss Garðabæjar, hafa nálgast sig með hugmynd að veitingastað og að honum hafi strax litist vel á þá hugmynd. Hlynur segist hafa litið í kringum sig og áttað sig á því að hann ætti marga félaga með mikla reynslu og gott orðspor í veitingabransanum. „Það er eitthvað sem maður þarf til að hefja svona rekstur og ákvað ég því að stökkva á þetta tækifæri,“ segir Hlynur. Yfirkokkur veitingastaðarins verður Ricardo Melo, sem var áður á veitingastöðunum Kol og Vegamótum, og segir Hlynur þá hafa fengið marga flotta þjóna til liðs við sig. Hann segir að mikið hafi verið lagt upp úr hönnun staðarins og að andrúmsloftið henti vel fyrir þá sem vilja eiga notalega kvöldstund. Einnig verður boðið upp á „take away“-valmöguleika og segir Hlynur að lagt sé áherslu á að réttirnir séu bæði hollir og góðir og getur fólk því borðað þarna með góðri samvisku.Jón Arnór Stefánsson, Pavel Ermolinskij og Hlynur Bæringsson á leið í verkefni með landsliði Íslands í körfubolta.Vísir/ErnirÆtlar að borga Pavel til baka Félagar Hlyns til margra ára, landsliðsmennirnir Jón Arnór Stefánsson og Pavel Ermolinskij, hófu fyrir tæpum fjórum árum rekstur Kjöts og fisks sem er með tvær verslanir á höfuðborgarsvæðinu, aðra í Bergstaðastræti í Reykjavík en hina á Garðatorgi í Garðabæ. Jón Arnór og Pavel er leikmenn KR í Domino's-deild karla og því andstæðingar Hlyns í deildinni en hann segir þá hafa gefið honum góð ráð þegar kemur að þessum veitingastað. Þeir hittist reglulega í kaffi og nú snúist umræðan ekki bara um körfubolta í dag heldur einnig mat og uppskriftir. „Það er bara mjög gaman og svo eru þeir svo stutt frá staðnum að við getum haft vöruskipti hérna á miðri leið. Ég þarf líka að borga Pavel til baka því hann hefur verið svo duglegur að gefa mér að borða í gegnum árin,“ segir Hlynur að lokum.
Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Sjá meira