Snjall pistill Páls eða hrein og klár lágkúra Jakob Bjarnar skrifar 2. febrúar 2018 14:51 Páll og Illugi. Ekki leyfir af kurteislegu yfirbragði ritdeilna þeirra og undir krauma alvarlegar ávirðingar.
Páll Magnússon alþingismaður telur þá hræsnara, í það minnsta ekki samkvæma sjálfum sér, sem nú vilja að Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra segi af sér en þögðu þegar Jóhanna Sigurðardóttir þá forsætisráðherra lenti í hremmingum vegna skipunar skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu. Sigríður var dæmd í Hæstarétti sem segir að skipan hennar á landsréttardómurum sé ólögmæt en Jóhanna var dæmd sek af kærunefnd jafnréttismála og sögð hafa brotið brotið jafnréttislög. Ljóst er að sitt sýnist hverjum hvort hér sé um sambærileg mál að ræða.Hinn hneykslaði Illugi Páll beinir orðum sínum til Illuga Jökulssonar rithöfundar og álitsgjafa: „Nú langar mig að spyrja þig: Þegar Jóhanna Sigurðardóttir, þá forsætisráðherra, braut jafnréttislögin 2010 - krafðist þú þess þá opinberlega að hún segði af sér ráðherraembætti? Þegar Svandís Svavarsdóttir, þá umhverfisráðherra, braut lög um umhverfismál 2011 - krafðist þú þess þá opinberlega að hún segði af sér ráðherraembætti? Þegar Ögmundur Jónasson, þá innanríkisráðherra, braut jafnréttislögin 2012 - krafðist þú þess þá opinberlega að hann segði af sér ráðherraembætti? Ekki?“ spyr Páll og heldur ótrauður áfram:Hver er samkvæmur sjálfum sér, þú eða ég? „Núna nærðu ekki upp á nef þér af hneykslan yfir því að Sigríður Andersen sé ekki búin að segja af sér vegna þess að dómstólar komust að þeirri niðurstöðu að hún hafi ekki sinnt nægilega vel sjálfstæðri rannsóknarskyldu á hæfni umsækjenda um dómaraembætti. Nú get ég sagt þér að í engum ofangreindra tilvika taldi ég tilefni fyrir ráðherra til afsagnar (en í mörgum öðrum tilvikum sem ekki eru til umræðu hér!) Síðasta spurningin: hvor er samkvæmari sjálfum sér - þú eða ég?“ Pistill Páls hefur fengið mikil viðbrögð meðal vina hans á Facebook og nota menn tækifærið og sparka óspart til Illuga á þeim vettvangi. Hann er kallaður „skítapakk“ og „Illhugi“ og talinn vafi á að hann þori að svara, enda hafi hann engin svör. Svo snjall þykir pistill Páls. Óhætt er að segja að Illugi fái það óþvegið á Facebooksíðu Páls.Lágkúra af hálfu PálsEn, Illugi svarar reyndar og notar vettvang sinn á Stundinni, hvar hann birtir pistla sína, til þess. Svar hans er ítarlegt og ljóst að honum þykir þetta hin mesta lágkúra af hálfu Páls, að stilla sér upp með þessum hætti. Og honum segir fátt eitt líkt með málum Jóhönnu og Sigríðar. „Og ég verð að segja, Páll, að mér þykir satt að segja frekar billegt af þér, að ég segi ekki lágkúrulegt, að nefna Jóhönnu Sigurðardóttur hér til sögu. Mál hennar var bara ekki á nokkurn einasta hátt sambærilegt við mál Sigríðar nú, hvorki lagalega né siðferðilega, og á það hefur margoft verið bent. Það lá reyndar strax í augum uppi að kærunefnd jafnréttismála væri líklega á mjög hálum ís í því máli (um það má til dæmis lesa hér) og ég sá enga ástæðu til að krefjast afsagnar Jóhönnu vegna þessa.“ Víst er að þau viðhorf sem Páll setur fram og svo þau sem birtast í svörum Illuga verða enn um sinn umdeild.
Dómstólar Landsréttarmálið Tengdar fréttir Skorað á dómsmálaráðherra að sýna sóma sinn í að segja af sér Sigríður Andersen dómsmálaráðherra var harðlega gagnrýnd af þingmönnum stjórnarandstöðunnar á Alþingi í dag fyrir að hafa leynt þingið upplýsingum varðandi skipan fimmtán dómara í Landsrétt. 1. febrúar 2018 19:30 Sóttu hart að dómsmálaráðherra: „Er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að falla á fyrsta prófinu?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu hver á fætur öðrum í pontu Alþingis við upphaf þingfundar í dag undir liðnum fundarstjórn forseta. 1. febrúar 2018 11:15 Bein útsending: Blaðamannafundur dómsmálaráðherra Vísir verður með beina útsendingu úr dómsmálaráðuneytinu þar sem Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, heldur blaðamannafund sem hefst klukkan 13:15. 2. febrúar 2018 12:45 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira
Skorað á dómsmálaráðherra að sýna sóma sinn í að segja af sér Sigríður Andersen dómsmálaráðherra var harðlega gagnrýnd af þingmönnum stjórnarandstöðunnar á Alþingi í dag fyrir að hafa leynt þingið upplýsingum varðandi skipan fimmtán dómara í Landsrétt. 1. febrúar 2018 19:30
Sóttu hart að dómsmálaráðherra: „Er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að falla á fyrsta prófinu?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu hver á fætur öðrum í pontu Alþingis við upphaf þingfundar í dag undir liðnum fundarstjórn forseta. 1. febrúar 2018 11:15
Bein útsending: Blaðamannafundur dómsmálaráðherra Vísir verður með beina útsendingu úr dómsmálaráðuneytinu þar sem Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, heldur blaðamannafund sem hefst klukkan 13:15. 2. febrúar 2018 12:45