Fjandmanni dýraverndar falið að hafa umsjón með dýralífi Kjartan Kjartansson skrifar 6. apríl 2018 15:24 Frá Yellowstone-þjóðgarðinum í Bandaríkjunum. Combs hefur verið andsnúin nær öllum tillögum um að lýsa dýrategundir í útrýmingarhættu. Vísir/AFP
Innanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur valið fyrrverandi embættismann frá Texas sem hefur verið einarðlega andsnúinn lögum um dýr í útrýmingarhættu til að stýra málefnum fiskistofna, dýralífs og þjóðgarða. Susan Combs er stórbóndi og fyrrverandi fjármálastjóri Texas-ríkis. Washington Post segir að hún hafi sterk tengsl við olíuiðnaðinn. Sem embættismaður háði hún margar hildir við Fisk- og dýralífsstofnun Bandaríkjanna vegna beitingu laga um dýr í útrýmingarhættu. Hún vildi meðal annars fella niður vernd söngfuglategundar sem var talin í útrýmingarhættu og fullyrti að það skaðaði viðbúnað hersins árið 2015. Hún líkti meðal annars alríkislögum um vernd dýrategunda í útrýmingarhættu við sovésk flugskeyti fyrir þingnefnd árið 2013. Þá er hún sögð hafa verið andsnúin nær öllum tillögum alríkisstjórnarinnar um að setja dýr á lista yfir tegundir í útrýmingarhættu og dregið í efa vísindalegar niðurstöður og mat á efnahagslegum áhrifum. Upphaflega var Combs tilnefnd sem aðstoðarráðherra stefnumótunar, stjórnunar og fjármálaáætlunar í júlí. Dregist hafði að staðfesta tilnefningu hennar í Bandaríkjaþingi vegna andstöðu bæði repúblikana og demókrata af ýmsum ástæðum. Washington Post segir að svo virðist sem að Zinke hafi skipað Combs í stöðu starfandi aðstoðarráðherra yfir dýralífsmálum í hefndarskyni. Hann hefur unnið með þingmönnum repúblikana að því að draga tennurnar úr lögum um dýr í útrýmingarhættu.Combs mun nú hafa áhrif á stefnu bandarískra stjórnvalda um stjórn dýralífsmála.Vísir/AFP
Bandaríkin Tengdar fréttir Stjórn Trump kynnir áætlanir um að minnka hömlur á olíuborun Leyfðu svæðin gætu orðið 47 talsins en þau voru aðeins 11 í forsetatíð Baracks Obama. 4. janúar 2018 21:40 Ætlar að fækka friðlöndum „Í dag erum við að færa valdið aftur til ríkjanna,“ sagði Donald Trump. 26. apríl 2017 17:36 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Sjá meira
Stjórn Trump kynnir áætlanir um að minnka hömlur á olíuborun Leyfðu svæðin gætu orðið 47 talsins en þau voru aðeins 11 í forsetatíð Baracks Obama. 4. janúar 2018 21:40
Ætlar að fækka friðlöndum „Í dag erum við að færa valdið aftur til ríkjanna,“ sagði Donald Trump. 26. apríl 2017 17:36