Toure: Pep var andstyggilegur við mig Henry Birgir Gunnarsson skrifar 5. júní 2018 07:30 Yaya og Pep eru engir vinir. vísir/getty
Fyrrum miðjumaður Man. City, Yaya Toure, segir að stjóri City, Pep Guardiola, komi ekki eins fram við afríska leikmenn og aðra í hans liði. Toure var að yfirgefa herbúðir City eftir átta ár hjá félaginu. Hann segir einnig að Guardiola sé öfundssjúkur. „Kannski fáum við Afríkubúarnir ekki alltaf sömu meðferð hjá Pep og hinir,“ segir Toure í viðtali við France Football. Hann þekkir Guardiola vel eftir að hafa leikið undir hans stjórn í tvö ár hjá Barcelona og svo hjá City. Samband þeirra var þó ansi oft stirt og Toure var aðeins í liðinu í lokaleiknum á síðasta tímabili. „Ég veit ekki af hverju en ég hafði á tilfinningunni að hann væri öfundssjúkur út í mig. Hann lét eins og ég væri andstæðingur hans. Eins og ég væri að varpa einhverjum skugga á hann. Hann var andstyggilegur við mig. Ég hugsaði stundum hvort það hefði eitthvað með húðlit minn að gera,“ segir Toure sár og svekktur. „Ég er ekki sá fyrsti til þess að velta þessu upp. Hjá Barcelona voru menn lika að hugsa það sama. Er við sjáum hann lenda í vandræðum með Afríkubúa hvar sem hann kemur þá fer maður að spyrja sig ýmissa spurninga.“
Enski boltinn Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Sýnir hvað þau eru þakklát fyrir það sem ég gaf klúbbnum“ Fótbolti Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Sjá meira