Blíðvinafundir Þórlindur Kjartansson skrifar 3. ágúst 2018 06:00 Flestir eru sammála um að sönn vinátta sé meðal þess mikilvægasta sem manneskja getur eignast. Þegar við erum ung byrjum við að læra að eignast vini og þá fyrstu velur maður í raun ekki sjálfur. Fyrsta vináttan myndast iðulega alfarið vegna tilviljanakenndra aðstæðna. Fyrstu vinirnir eru kannski þeir sem leikskólakennarinn raðar við hliðina á manni í nestistímum leikskólans, einhver sem býr heppilega nálægt manni eða einhver sem labbar sömu leið og maður sjálfur í skólann eða á íþróttaæfingu. Börn læra smám saman hvernig vináttu er háttað. Góðir vinir geta spjallað saman um alla heima og geima og gleymt sér. Sjálfur átti ég svo góðan vin þegar ég var sex ára að við áttum það til að þramma yfir hálfa Heimaey djúpt sokknir í alls konar pælingar áður en við áttuðum okkur á því að við höfðum fyrir löngu átt að vera búnir að taka beygjuna heim. Þetta var auðvitað fyrir tíma snjallsíma og staðsetningartækja þannig að engin leið var að trufla þessar stefnulausu stundir okkar félaganna með eftirliti og eftirrekstri.Ungir vinir Börn átta sig fljótlega á því að eðli vináttunnar er allt annað og flóknara heldur en sambandsins við foreldra og systkini. Með vinum myndast smám saman trúnaður, sem byggist ekki bara á því að vinir geti talað um leyndarmál sín á milli heldur að þeir geti gengið út frá því sem vísu að þeir eigi hjá vinum sínum skilningsríkt og umburðarlynt skjól frá öllu öðru sem gengur á lífinu. Góðir vinir læra það líka að standa saman, en vera hver öðrum aðhald—segja sannleikann meira að segja þegar hann er óþægilegur og erfiður. Traust vinátta er svo djúpstæð að jafnvel áralangur aðskilnaður breytir engu um þær tilfinningar sem vinir bera hver til annars, eins og segir í Hávamálum að gagnvegir liggi til góðs vinar þótt hann sé firr farinn. Og það gildir gjarnan um bernskuvini, að jafnvel þótt ár og áratugir líði án þess að þeir hittist þá eru endurfundir við trausta bernskuvini áreynslulausir, þægilegir, gleðiríkir og fallegir. Gamlir vinir En hver er tilgangur vináttunnar? Á yfirborðinu gæti virst sem tilgangur vináttu sé fyrst og fremst að deila því gleðilega í lífinu. Góðir vinir skemmta sér saman, fara saman á íþróttaleiki, veiða saman og hittast í veislum. En þetta er auðvitað alls ekki tilgangur vináttunnar. Vinátta þjónar fyrst og fremst þeim tilgangi að geta gengið að stuðningi og skilningi vísum þegar eitthvað bjátar á í lífinu—að eiga bandamenn. Þess vegna eru vináttubönd barnæskunnar sterk, því jafnvel þótt vinir hittist til þess að leika sér saman og sinna sameiginlegum áhugamálum, þá eru það vinirnir sem fyrstir af öllum öðrum í heiminum eru tilbúnir til þess að hlusta á vangaveltur manns í lífinu án þess að þykjast endilega vita betur, taka þátt í að búa til nýja hluti í sameiningu, sigrast á verkefnum eða óvinum saman og almennt að vera saman í liði. Og það er því kannski ekki skrýtið að næst á eftir kvennafari og fylleríi, þá hefur vináttan verið eitt helsta meginstefið í Þjóðhátíðarlögum í gegnum tíðina. Þannig orti Árni úr Eyjum árið 1937 um Þjóðhátíð: Ljósin kvikna, brennur bál. Bjarma slær á grund. Enn þá fagnar sérhver sál sælum endurfund. Nýir vinir Þegar við eldumst hættir vináttan gjarnan að vera eins tilviljanakennd. Við umgöngumst smám saman fábreyttari hópa af fólki sem hefur valið sér svipuð áhugamál eða leið í lífinu og við sjálf. Og það gerist jafnvel stundum að fólk leggur minni rækt við vináttu þegar það eldist. Það er nefnilega vandinn við vináttuna að hún tekur mikinn tíma. Góðir bernskuvinir verja ekki bara einstaka kvöldstund saman yfir ölglasi heldur heilu og hálfu dögunum yfir leikjum, spjalli, íþróttum eða hvers kyns ráðabruggi og fyrirætlunum. Í gegnum allt þetta verður smám saman til næmur gagnkvæmur skilningur á milli vina. Þessu er erfitt að ná fram á fullorðinsárum og hugsanlega hefur nútíminn dregið enn þá meira úr möguleikum fullorðins fólks til þess að stofna til nýrrar vináttu. Fyrir ekki svo löngu síðan—og kannski sums staðar enn—var það ofurvenjulegt og ekkert tiltökumál að biðja vini sína um að hjálpa sér með alls konar viðvik. Og þá er ég ekki að meina flutninga á sjö ára fresti, heldur til dæmis að eyða heilli helgi í að mála íbúð, stinga upp garðinn eða fúabera pallinn. Þetta þætti eflaust frekar heimtufrekt nú til dags. Það eru allir svo uppteknir af því að horfa á Netflix, vera á skíðum eða hvíla sig heima hjá sér. En það er einmitt í gegnum alls konar sameiginleg verkefni sem kunningsskapur fullorðinna getur umbreyst í vináttu. Margir hafa áhyggjur af því að vináttan sé að hverfa. Þetta er meðal annars vegna þess að margt af því sem fólk hefur í gegnum tíðina þurft að leita til nágranna sinna með er nú leyst með alls konar þjónustu sem er aðkeypt. Fyrir vikið snýst vináttan fyrst og fremst um að skemmta sér saman, sem er góðra gjalda vert en heldur innihaldsrýrt til lengri tíma litið. Stjörnur tvær Vinirnir Ási í Bæ og Oddgeir Kristjánsson sömdu saman mörg af frægustu Eyjalögunum. Þar á meðal Þjóðhátíðarlagið árið 1951 þar sem segir um sjómenn á leið í land: Er vindur lék í voðum og vængir lyftu gnoðum, þeir þutu beint hjá boðum á blíðvinafund. En ellefu árum seinna reyndi á vináttuna þegar Ási var seinn að skila texta í Þjóðhátíðarlagið 1962. Oddgeir mun hafa orðið reiður yfir slúbbertaskap skáldsins, en hlýtur að hafa tekið hann í sátt þegar textinn sem hefst á orðunum „Ég veit þú kemur í kvöld til mín“ barst honum í hendur. Ási segist hafa séð í gegnum augu vinar síns að stóryrðin væru innihaldsrýr: „Ég trúi ekki á orðin þín, ef annað segja stjörnur tvær.“ Og það er nú líka það besta við helgar eins og þessa, að þær eru tækifæri til þess að hitta og gleðjast með gömlum vinum—og það er aldrei að vita nema algjörlega tilviljanakennd ný vinátta geti stofnast við nágrannann í næsta tjaldi, ef maður þorir að gefa sig á tal, og jafnvel til við að reka niður hæla. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þórlindur Kjartansson Mest lesið Hvað vakir fyrir utanríkisráðherra? Snorri Másson Skoðun Woke-ið lifir! Bjarni Snæbjörnsson Skoðun Ingibjörg Gunnarsdóttir - Framtíð Háskóla Íslands Áróra Rós Ingadóttir Skoðun Forstjórinn á Neskaupstað Björn Ólafsson Skoðun Á krossgötum í Úkraínu Gunnar Pálsson Skoðun Ísland, Trump og Evrópa – hvað næst? Dagur B. Eggertsson Skoðun Skólinn okkar, FSH Elmar Ægir Eysteinsson Skoðun Almennar skimanir fyrir ristilkrabbameini að hefjast Alma D. Möller Skoðun Af hverju lýgur Alma? Arnar Sigurðsson Skoðun Orðið er þitt: Af orðsnillingum og hjálpardekkjum Lilja Dögg Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað vakir fyrir utanríkisráðherra? Snorri Másson skrifar Skoðun Ingibjörg Gunnarsdóttir - Framtíð Háskóla Íslands Áróra Rós Ingadóttir skrifar Skoðun Á krossgötum í Úkraínu Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Þegar grafið er undan sjálfi, lífsgleði og tilgangi mannvera Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun St. Tómas Aquinas Árni Jensson skrifar Skoðun Skólinn okkar, FSH Elmar Ægir Eysteinsson skrifar Skoðun Föður- og mæðralaus börn Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Minni kvaðir - meira frelsi? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forstjórinn á Neskaupstað Björn Ólafsson skrifar Skoðun Woke-ið lifir! Bjarni Snæbjörnsson skrifar Skoðun Almennar skimanir fyrir ristilkrabbameini að hefjast Alma D. Möller skrifar Skoðun Plastflóðið Emily Jaimes Richey-Stavrand,Johanna Franke,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Baráttan á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Orðið er þitt: Af orðsnillingum og hjálpardekkjum Lilja Dögg Jónsdóttir skrifar Skoðun Farsæl reynsla af stjórnun og samvinnu Ingibjörg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Trump kemur ekki á óvart, en Evrópa getur það Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Ef það er vilji, þá er vegur Jóhanna Klara Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Magnús Karl Magnússon sem rektor – Skýr sýn á samvinnu og samtakamátt í vísindum Erna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju lýgur Alma? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Snúið til betri vegar Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Er varnarsamningurinn við Bandaríkin í hættu? Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Stöðvum blóðmerahaldið á Íslandi Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Forysta til framtíðar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland, Trump og Evrópa – hvað næst? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Þrjátíu ár af framförum – En hvaða áskoranir bíða? Birta B. Kjerúlf,Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Stígum upp úr skotgröfunum, æsku landsins til heilla! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Höfum gott fólk í forystu – kjósum Höllu í VR Gísli Jafetsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd og heyrnarskerðing – Grein í tilefni Dags heyrnar Elín Ýr Arnar skrifar Skoðun Hitler og Stalín, Pútín og Trump Birgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Til stuðnings Kolbrúnu Pálsdóttur í rektorskjöri Kristján Kristjánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar grafið er undan sjálfi, lífsgleði og tilgangi mannvera Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Magnús Karl Magnússon sem rektor – Skýr sýn á samvinnu og samtakamátt í vísindum Erna Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Þrjátíu ár af framförum – En hvaða áskoranir bíða? Birta B. Kjerúlf,Kjartan Ragnarsson skrifar