Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir og Jóhanna Kristjánsdóttir skrifa 9. október 2026 13:33 Ísland var lengi fyrirmynd annarra þjóða í tóbaksvörnum. Við náðum reykingum niður með markvissri löggjöf, fræðslu og kjarki til að setja hagsmuni almennings ofar hagsmunum seljenda. Nú blasir við ný og öðruvísi áskorun. Í greinargerð með drögum heilbrigðisráðherra að frumvarpi til laga um nikótín- og tóbaksvarnir kemur fram að um 33% ungmenna noti nikótínpúða og að notkun þeirra sé langtum algengari hér á landi en annars staðar í Evrópu. Dagleg notkun ungra karla á aldrinum 18–34 ára fór úr um 20% árið 2020 í 32% árið 2023. Þetta er ekki tölfræði um fólk sem hætti að reykja sígarettur. Í greinargerðinni segir berum orðum að aðeins lítill hluti notenda séu fyrrverandi reykingamenn og að um sé að ræða nýja kynslóð nikótínnotenda. Við erum með öðrum orðum að ala upp kynslóð sem er háð nikótíni, og hún byrjaði aldrei að reykja. Hver eiga að ráða ferðinni? Í samráðsferli frumvarpsins bárust umsagnir frá fjölþjóðlegum tóbaksframleiðendum. Swedish Match taldi að leyfa ætti bragðefni á borð við myntu og mentól og að bönn myndu ýta undir svartan markað. British American Tobacco taldi 20 mg í hverjum púða hæfilegt magn. Innlendir söluaðilar mótmæltu banni við netsölu og takmörkunum á bragðefnum. Það er eðlilegt að fyrirtæki gæti hagsmuna sinna en sannleikurinn er sá að nikótín er eitt mest ávanabindandi efni sem til er. Tekjur þeirra sem selja það aukast eftir því sem fleiri verða háðir því og eftir því sem hver og einn notar meira. Þegar þessir aðilar leggja til hvaða styrkleiki sé „hæfilegur“, hvaða bragðefni séu „fyrir fullorðna“ og hvaða sölufyrirkomulag sé „markvisst“, þá tala þau fyrir eigin afkomu, ekki fyrir lýðheilsu. Rödd þeirra má heyrast en hún á alls ekki að ráða för. Lög um ávanabindandi efni eiga að taka mið af því hvað er best fyrir samfélagið: heilsu barna og ungmenna, álagi á heilbrigðiskerfið og kostnaði sem við berum öll að lokum. Í greinargerð frumvarpsins er vísað til þekktra áhrifa nikótíns á hjarta- og æðakerfi og á þroska heilans hjá ungu fólki. Hvert ungmenni sem verður háð nikótíni í dag er mögulegur skjólstæðingur heilbrigðiskerfisins á morgun. Þann reikning greiða ekki framleiðendurnir, hann greiða borgarar þessa lands. Nágrannar okkar hafa þegar brugðist við Við þurfum ekki að finna upp hjólið. Víða í Evrópu hefur verið gripið fast í taumana á síðustu misserum. Í Noregi, Hollandi, Belgíu og Frakklandi er sala tóbakslausra nikótínpúða bönnuð. Frakkland bannaði frá 1. apríl 2026 ekki aðeins sölu heldur einnig vörslu og notkun. Í Þýskalandi eru púðarnir í reynd ekki söluhæfir. Danmörk leyfir púða en hefur frá 1. apríl 2026 sett 9 mg hámark á hvern púða, leyft einungis tóbaks- og mentólbragð, krafist einsleitra umbúða og ákveðið að í hverri dós skuli vera nákvæmlega 20 púðar. Finnland setti 16,6 mg/g hámark, bannaði netsölu, gerði sölu leyfisskylda og tók upp einsleitar umbúðir 1. ágúst síðastliðinn. Holland og Finnland leyfa einungis tóbaksbragð í rafrettum. Belgía, Frakkland og Bretland hafa bannað einnota rafrettur. Þessi lönd hafa ekki gert þetta að geðþótta. Þau horfðu á sömu þróun og við sjáum nú og ákváðu að lýðheilsa vægi þyngra en hagsmunir markaðsins. Frumvarpið er skref í rétta átt, en bara hænuskref Frumvarp heilbrigðisráðherra er til bóta. Það gerir smásölu og netsölu leyfisskyldar, bannar heimsendingu þriðja aðila og fjarsölu erlendis frá, heldur sýnileikabanni og algjöru auglýsingabanni og bannar umbúðir sem höfða til barna. Allt er það rétt. Það sem vantar er þó einmitt það sem mestu skiptir. Frumvarpið ákveður ekki hámarksstyrkleika nikótínpúða; það er lagt í hendur ráðherra með reglugerð. Það bannar ekki sælgætis- og ávaxtabragð; það heimilar ráðherra að gera það. Krafa um einsleitar umbúðir nikótínvara var í upphaflegu drögunum en var felld úr lagatextanum eftir samráð. Með öðrum orðum hefur frumvarpið veikst á þeim stöðum þar sem hagsmunaaðilar þrýstu hvað mest. Það er ekki tilviljun. Við þekkjum þessa sögu frá baráttunni gegn sígarettum. Iðnaðurinn berst gegn hverju skrefi, spáir svörtum markaði og hruni verslana en þegar reglurnar hafa tekið gildi kemur í ljós að samfélagið stendur betur. Hvað getur Alþingi gert? Við hvetjum þingmenn til að styrkja frumvarpið í meðförum þingsins: Hámarksstyrkleiki í lög. Hámarksstyrkleiki nikótínpúða á að vera bundinn í lög, ekki háður reglugerð sem getur tafist eða breyst. Danska hámarkið, 9 mg á púða, er skynsamleg viðmiðun. Bann við sælgætis- og ávaxtabragði. Bragðefni sem höfða til barna og ungmenna á að banna með lögum, í púðum jafnt sem rafrettum. Greinargerð frumvarpsins bendir sjálf á að bragðefni spila lykilhlutverk í vinsældum þessara vara meðal ungs fólks. Einsleitar umbúðir aftur inn. Umbúðir eru markaðssetning. Litríkar dósir með aðlaðandi nöfnum eiga ekki heima í vösum fermingarbarna. Enginn frekari frestur. Hvert ár sem líður bætast við nýir notendur sem losna seint eða aldrei úr viðjum fíknarinnar. Þeim sem vilja nota nikótín til að hætta að reykja stendur áfram til boða plástrar, tyggigúmmí og munnholsúðar sem eru framleidd og markaðssett sem lyf gegn nikótínfíkn. Strangara regluverk um nikótínpúða og rafrettur lokar engum dyrum fyrir þau sem raunverulega þurfa hjálp. Það lokar hins vegar dyrum að nýrri kynslóð viðskiptavina. Spurningarnar sem Alþingi þurfa að svara er einfaldar: Á að skrifa lögin með hagsmuni þeirra sem selja fíknina í huga, eða með hagsmuni þeirra sem annars verða háðir henni? Á að láta markaðsöflin njóta vafans eða börn og ungmenni? Svörin ættu að vera jafn augljós nú og þegar við tókum á sígarettunum. Höfundar eru framkvæmdastjóri og formaður Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Krabbamein Mest lesið Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar