Arnór lagði upp í stórsigri Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. ágúst 2018 15:00 Arnór Ingvi Traustason fagnar hér marki með Malmö Vísir/EPA
Arnór Ingvi Traustason lagði upp eitt marka Malmö í stórsigri á Sirius í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Kristján Flóki Finnbogason og félagar steinlágu fyrir Hacken. Eftir markalausan fyrri hálfleik í Malmö voru ótrúlegar loka mínútur þar sem Malmö setti fimm mörk á 25 mínútum. Stíflan brast á 62. mínútu þegar Markus Rosenberg skoraði úr vítaspyrnu. Romain Gall setti tvö mörk á sex mínútuna kafla áður en Arnór lagði upp mark fyrir Anders Christiansen. Marcus Antonssn átti svo síðasta orðið með fimmta markinu á 88. mínútu. Það var annar stórsigur þegar Hacken og Brommapojkarna mættust. Kristján Flóki Finnbogason spilaði allan leikinn í liði Brommapojkarna sem átti lítinn séns í þessum leik. Fyrsta markið kom strax á 3. mínútu. Heimamenn fengu svo vítaspyrnu á 9. mínútu sem Paulinho misnotaði. Það kom þó ekki að sök. Mínútu síðar skoraði Alexander Faltsetas áður en nafni hans Alexader Jeremejeff bætti við öðru marki sínu og þriðja marki Hacken. Heimamenn héldu áfram í seinni hálfleik, skoruðu þar önnur þrjú mörk og lokastaðan 6-0 sigur Hacken. Brommapojkarna er í fallbaráttu en Hacken er í baráttunni í efri hluta deildarinnar. Malmö er átta stigum á eftir toppliði AIK sem á þó leik til góða.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Tólf leikmenn komnir til KR Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Sjá meira