Keppninni bárust rúmlega 130 margvíslegar viðskiptahugmyndir og hafa þátttakendur Gulleggsins unnið að því síðustu mánuði að þróa markvissar og raunhæfar áætlanir úr hugmyndum sínum. Að þeirri vinnu lokinni bárust aðstandendum Gulleggsins um 40 viðskiptaáætlanir. Áætlanirnar voru vegnar og metnar af fjölmennum rýnihópi fagaðila sem veittu þeim einkunn.
Tíu stigahæstu hugmyndirnar, sem keppa munu til úrslita á lokadegi Gulleggsins þann 3. nóvember næstkomandi, eru eftirfarandi:

9am Iceland
9amIceland er að þróa hugbúnaðarlausn sem mun hjálpa fólki á leið um landið að nálgast samþættar upplýsingar um norðurljós, veður, færð og áhugaverða staði með því að birta gögn frá viðurkenndum stofnunum á einföldu, sérsníðanlegu og gagnvirku korti.
Álfur Beer
Álfur bruggar bjór úr kartöfluskræli og afskorningum sem verða til afgangs í framleiðslu kartöfluvara og fara annars til spillis. Úr verður léttur og auðdrekkanlegur bjór úr úrvals íslensku hráefni sem minnkar sóun matvæla.
Ekki banka: Trygginga- og lánagátt
Ekki banka hjálpar neytendum að leita bestu kjara á lána- og tryggingamarkaði.
Byggingasamvinnufélag SUBL
Markmiðið er að fá reiti sem liggja miðsvæðis og vel við almennningssamgöngum á höfuðborgar-svæðinu og byggja þar þétta, lágvaxna og vistvæna byggð þar sem aðrir samgöngumátar en bíllinn hafa forgang.
Eirium
Eirium þróar dreifðan hugbúnað sem eykur gegnsæi, traust og nýtni í því fjármagni sem lagt er til hjálparstarfs, neyðar- og þróunaraðstoðar um allan heim.
Flowvr
Flowvr býður uppá áhrifaríka hugleiðslu í alltumlykjandi sýndarveruleika.
Greiði
Greiði er app og markaður fyrir öll möguleg verk sem finnast í samfélagi okkar. Þar geta verkkaupar auðveldlega leitað að fjölbreyttri þjónustu, fundið verktaka í málið, borið saman verð og pantað þjónustu á skilvirkan máta. Vantar þig einhvern til að slá grasið þitt? Passa hundinn í fríinu? Laga pípulagnirnar? Frönskukennslu? Aðstoð við að flytja? Greiðinn getur hjálpað þér við þetta og margt annað.
Koride
Koride er samfélagsvefur sem tengir saman ferðamenn og auðveldar þeim að kynnast, skipuleggja ferðir saman og deila kostnaði af þeim.
TAPP
TAPP er hugbúnaður hannaður fyrir kvikmyndagerðarfólk og aðra verktaka. TAPP mun halda utan um verkefni, unna tíma og útlagðan kostnað og rukka fyrir þá vinnu með útsendingu reikninga og innheimtu í gegnum kerfið. Fyrirtæki geta einnig nýtt sér TAPP til að fylgjast með tímaskráningu starfsmanna sinna í rauntíma og borið þá saman við fjárhagsáætlun hvers verkefnis fyrir sig.
VÄRK
Vara sem gerir fólki kleift að endurvinna kaffikorg til þess að rækta ostrusveppi heima hjá sér.
Keppnin er nú haldin í tólfta sinn en Gullegið hefur alið af sér fjöldan allan af sprotafyrirtækjum sem mörg eru orðin að stórum fyrirtækjum. Sem dæmi um fyrri þátttakendur má nefna Meniga, Karolina Fund, Clara, eTactica, Controlant, Nude Magazine, Róró Lulla doll, Pink Iceland, Videntifier og Cooori.
Sigurvegarar Gulleggsins í fyrra voru Atmonia, fyrirtæki sem þróar byltingarkennt ferli til umhverfisvænnar áburðarframleiðslu á smáskala.
