Tálmun, ofbeldi og hótanir við veitingahús í Grafarholti Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. október 2018 07:43 Ekki liggur fyrir hvort um sama veitingahús í Grafarholti var að ræða í málunum tveimur. Vísir/Vilhelm
Tveir menn voru handteknir með stuttu millibili við veitingahús í Grafarholti seint í gærkvöldi. Fyrri maðurinn var handtekinn klukkan 23:39 en hann var ölvaður og er grunaður um hótanir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu vildi maðurinn aðspurður hvorki gefa upp nafn sitt né kennitölu. Hann var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Um fjörutíu mínútum síðar var annar ölvaður maður handtekinn við veitingahús í Grafarholti. Sá er grunaður um tálmun og ofbeldi gegn lögreglu en hann reyndi að hindra lögreglu við handtöku. Ekki liggur fyrir hvort um sama veitingahús var að ræða í málunum tveimur. Ökumenn undir áhrifum ollu slysum Eins og áður hefur komið fram var mikill erill hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt og eru fangageymslur á Hverfisgötu fullar eftir nóttina. Á sjötta tímanum í gær var tilkynnt um innbrot í bifreið í miðborginni en þaðan hafði verið stolið fjallgöngubúnaði. Á áttunda tímanum var tilkynnt um umferðaróhapp móts við Úlfarsfell. Ökumaður annars bílsins er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var handtekinn og vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Hinn ökumaðurinn fann til eymsla í mjöðm og var fluttur til aðhlynningar á Slysadeild. Báðar bifreiðar voru fluttar af vettvangi með dráttarbifreið. Skömmu fyrir klukkan tvö í nótt var tilkynnt um annað umferðaróhapp á Miklubraut við Kringlumýrarbraut. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur, of hraðan akstur og akstur mót rauðu ljósi. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og var að því búnu vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögrelgu. Um klukkan fjögur í nótt var svo tilkynnt um þriðja umferðaróhappið í Hafnarfirði. Tjónvaldur var handtekinn grunaður um ölvun við akstur og vistaður í fangageymslu. Þá sinnti lögregla málum vegna ofurvölvi manna í miðborginni í nótt auk þess sem nokkur fjöldi ökumanna var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Lögreglumál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira