Skuldabréfaeigendur fá 20 prósenta þóknun Kristinn Ingi Jónsson skrifar 14. nóvember 2018 08:00 Skúli Mogensen, forstjóri og eini eigandi WOW air, mun að lágmarki fá 1,8 prósenta hlut í sameinuðu félagi Icelandair Group og WOW að virði 1,1 milljarður króna miðað við núverandi gengi hlutabréfa í Icelandair. Fréttablaðið/Anton Brink
Eigendur skuldabréfa WOW air munu á næstu vikum greiða atkvæði um þá tillögu flugfélagsins að kaupréttir þeirra að hlutafé í félaginu verði felldir niður. Þess í stað býðst WOW air til að greiða bréfin á lokagjalddaga haustið 2021 með 20 prósenta þóknun. Í bréfi WOW air til skuldabréfaeigendanna, dagsettu 9. nóvember, segir að það sé skilyrði þess að yfirtaka Icelandair Group á félaginu nái fram að ganga að kaupréttirnir falli niður. Því til viðbótar eru þau skilyrði meðal annars sett í kaupsamningi Icelandair Group og WOW air að veðtryggingum að hlutafé í síðarnefnda félaginu verði aflétt og að skuldabréf félagsins verði ekki skráð á markað í Stokkhólmi. Atkvæðagreiðslu eigenda skuldabréfanna um breytta skilmála bréfanna lýkur 6. desember næstkomandi en áskilið er að tveir þriðju eigendanna, miðað við fjárhæð, samþykki tillögur WOW air. Stærð skuldabréfaflokksins nemur 60 milljónum evra, jafnvirði 8,4 milljarða króna. Þeir sem tóku þátt í skuldabréfaútboði flugfélagsins, sem lauk um miðjan septembermánuð, fengu sem kunnugt er kauprétt að hlutafé í félaginu sem nemur helmingi af höfuðstól skuldabréfanna. Tillaga WOW air, sem nú liggur fyrir, felst í því að kaupréttirnir verði felldir úr gildi og í staðinn muni félagið greiða eigendum skuldabréfanna höfuðstól bréfanna á gjalddaga, eftir þrjú ár, auk þóknunar sem nemur 20 prósentum af höfuðstólnum. Þá eru vextir á skuldabréfunum um níu prósent á ári. „Fullvissir“ stjórnendur Í bréfinu til skuldabréfaeigendanna, sem birt var á vef WOW air fyrir helgi, er rakið að skuldabréfaútgáfa flugfélagsins hafi verið byggð á viðskiptaáætlun fyrir árið 2019 sem hafi gert ráð fyrir að EBITDAR – hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði, leigu og skatta – yrði þá 142 milljónir dala borið saman við 42 milljónir dala á síðustu tólf mánuðum. Á meðan á útboðinu stóð eru stjórnendur WOW air sagðir í bréfinu hafa verið „fullvissir“ um að lánsféð myndi duga þar til sjóðsstreymi félagsins yrði jákvætt. Í kjölfar útboðsins hafi hins vegar aðstæður á flugmarkaði farið versnandi, meðal annars með þeim afleiðingum að lausafjárstaða WOW hafi versnað hratt á síðustu vikum. Ytra rekstrarumhverfi flugfélaga hafi breyst til hins verra, með hærra olíuverði, lægri flugfargjöldum og harðri samkeppni, og þá hafi nýlegt gjaldþrot Primera Air ekki bætt úr skák. Er tekið fram í bréfinu að vaxandi íhaldssemi hafi jafnframt gætt á meðal kröfuhafa. Af þessum ástæðum hafi Skúli Mogensen, forstjóri og eini eigandi WOW air, ákveðið að ganga til viðræðna við Icelandair Group til að tryggja áframhaldandi rekstur félagsins og veita því möguleika á að efna skuldbindingar sínar gagnvart skuldabréfaeigendunum. Hluthafar Icelandair munu greiða atkvæði um yfirtökuna á WOW air á hluthafafundi í lok mánaðarins en hún er jafnframt háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Á sama fundi verður kosið um tillögu um að heimila stjórn að auka hlutafé Icelandair um allt að 960 milljónir króna að nafnverði. Í tilkynningu Icelandair vegna kaupanna kom fram að félögin yrðu áfram rekin undir sömu vörumerkjum. Með yfirtökunni skapaðist tækifæri til sóknar á nýja markaði auk þess sem gert væri ráð fyrir að einingakostnaður Icelandair Group lækkaði. Skúli mun að lágmarki eignast 1,8 prósenta hlut í sameinuðu félagi, að virði 1,1 milljarður króna miðað við núverandi gengi bréfa í Icelandair Group, en verðið getur hækkað í 6,6 prósenta hlut, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.Íslendingar með þriðjung Eins og Markaðurinn hefur greint frá voru íslenskir fjárfestar með 37 prósent af heildareftirspurninni í skuldabréfaútgáfu WOW air í september eða sem nemur um 22 milljónum evra. Tveir sjóðir í stýringu GAMMA Capital Management fjárfestu til dæmis fyrir samanlagt tvær milljónir evra. Bandarískir fjárfestar keyptu um fjórðunginn af útgáfunni og fjárfestar frá Norðurlöndunum 19 prósent á meðan afgangurinn – um 19 prósent – var seldur til annarra fjárfesta í Evrópu. Engir einkafjárfestar tóku þátt í útboðinu sem norska verðbréfafyrirtækið Pareto Securities hafði yfirumsjón með. kristinningi@frettabladid.is
Birtist í Fréttablaðinu Fréttir af flugi Icelandair WOW Air Tengdar fréttir Telur ólíklegt að Icelandair og WOW verði rekin sem tvö félög til frambúðar Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og reynslubolti í fluggeiranum telur ólíklegt að Icelandair og WOW Air verði rekin sem tvö mismunandi vörumerki til frambúðar í kjölfar samruna félaganna. 11. nóvember 2018 11:15 Icelandair óskar ekki eftir undanþágu Stjórnendur félagsins hyggjast ekki óska eftir undanþágu frá samkeppnislögum til þess að kaupin á WOW air komi til framkvæmda strax. 7. nóvember 2018 06:15 Vilja auka hlutafé um 960 milljónir til að fjármagna kaupin Boðað hefur verið til hluthafafundar hjá Icelandair Group vegna fyrirhugaðra kaupa félagsins á WOW Air. 9. nóvember 2018 09:56 Mest lesið Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Lindex á Íslandi lækkar verð um allt að 22 prósent Viðskipti innlent Erlendu ráðgjafarnir fengu mun hærri laun Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Sjá meira
Telur ólíklegt að Icelandair og WOW verði rekin sem tvö félög til frambúðar Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Isavia og reynslubolti í fluggeiranum telur ólíklegt að Icelandair og WOW Air verði rekin sem tvö mismunandi vörumerki til frambúðar í kjölfar samruna félaganna. 11. nóvember 2018 11:15
Icelandair óskar ekki eftir undanþágu Stjórnendur félagsins hyggjast ekki óska eftir undanþágu frá samkeppnislögum til þess að kaupin á WOW air komi til framkvæmda strax. 7. nóvember 2018 06:15
Vilja auka hlutafé um 960 milljónir til að fjármagna kaupin Boðað hefur verið til hluthafafundar hjá Icelandair Group vegna fyrirhugaðra kaupa félagsins á WOW Air. 9. nóvember 2018 09:56