Vilborg Helga ráðin forstjóri Já Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. janúar 2019 11:40 Vilborg er MBA frá Háskólanum í Reykjavík og BA í sálfræði frá Háskóla Íslands auk þess sem hún hefur reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Já
Vilborg Helga Harðardóttir hefur verið ráðin forstjóri Já hf. Vilborg Helga mun taka við stöðu forstjóra félagsins af Sigríði Margréti Oddsdóttur sem hefur óskað eftir að láta af störfum. Breytingarnar taka gildi þann 1. febrúar næstkomandi en þá mun Sigríður jafnframt taka sæti í stjórn Já. Þetta kemur fram í tilkynningu. Vilborg Helga hefur þrettán ára reynslu af störfum fyrir félög innan samstæðu Já og hefur starfað sem rekstrarstjóri Já frá því í júní 2017. Hún er MBA frá Háskólanum í Reykjavík og BA í sálfræði frá Háskóla Íslands auk þess sem hún hefur reynslu af störfum á fjármálamarkaði. „Félagið vinnur samkvæmt skýrri stefnu og sinnir einnig mikilli nýsköpun og þróunarvinnu. Hjá félaginu starfar öflugur hópur starfsfólks, sem um þessar mundir er að vinna að mörgum spennandi viðskiptatækifærum. Ég hlakka mikið til framtíðarinnar í þessu nýju hlutverki hjá Já,“ segir Vilborg Helga, verðandi forstjóri Já. „Já er framúrskarandi fyrirtæki með einstaka menningu og mikla tæknihæfni, tvennt sem ég tel ómissandi fyrir árangursrík fyrirtæki í dag. Ég mun eiga áfram hlutinn minn í félaginu og vinna áfram að hag þess en með öðrum hætti. Ég mun því afhenda glöð keflið til Vilborgar. Ég ásamt öðrum í stjórn félagsins munum styðja hana og allt okkar góða fólk við áframhaldandi uppbyggingu þess,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, fráfarandi forstjóri Já. Já hf. er rekstrar- og móðurfélag fjölmargra vörumerkja og fyrirtækja á sviði upplýsingatækni á Íslandi. Vörumerkin sem heyra undir samstæðuna eru: Já.is, upplýsingavefur, app og númer, Gallup á Íslandi, sem er leiðandi á sviði markaðsrannsókna, Leggja, sem er greiðslulausn fyrir bílastæðagjöld og Markaðsgreining, sem veitir upplýsingar um sölutölur á smásölumarkaði á Íslandi. Hjá félaginu eru um 115 starfsmenn í 75 stöðugildum. Félagið var stofnað árið 2005 og hefur verið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki allt frá því að listinn var fyrst gefinn út.
Vistaskipti Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira