Skoðun

Mannréttindi Kúrda og íbúa Níkaragva

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Á síðastliðnu ári var Ísland kjörið í Mannréttinda­ráð Sameinuðu þjóðanna. Mannréttindamál hafa verið einn af hornsteinum utanríkisstefnu landsins. Vafalaust er eindreginn stuðningur meðal landsmanna við þá áherslu og um leið þverpólitísk samstaða um hana á Alþingi.

Fríverslun?

Mannréttindi ber nokkuð oft á góma í þinginu, m.a. vegna afgreiðslu á tillögum um fríverslunarsamninga við ríki, til dæmis Kína og Filippseyjar, og nú stendur til að endurnýja slíkan samning við Tyrkland. Skiptar skoðanir eru á því hvernig slíkir samningar ríma við mannréttindabrot í löndum þar sem stjórnvöld verða uppvís að margvíslegum rangindum í garð almennings eða minnihlutahópa. Iðulega er til þess vísað að samningaviðræðum og samningunum sjálfum fylgi umræður og ákvæði um mannréttindi og ástandið í löndunum. Minna fer fyrir úttektum á því hvort áhrifin eru tilætluð.

Kúrdar eiga í vök að verjast

Í Tyrklandi hafa Kúrdar mátt sæta mannréttindabrotum áratugum saman. Þau hafa enn versnað með tilkomu stefnu Erdogans og hans flokks; skipulagðar hafa verið atlögur að búsetuskilyrðum í byggðum Kúrda, margt manna fangelsað og áhrifafólk hrakið úr landi. Það gerist í aðildarlandi NATO og hefur Erdogan skákað í skjóli sem áhugi Rússa á víðtæku samstarfi við tyrknesk stjórnvöld og samhernaði í Sýrlandi myndar. Innrás Tyrkja í Sýrland bitnar harðlega á Kúrdum í landinu og einnig þar hefur tyrkneski herinn farið fram af hörku gegn almenningi. Engin ástæða er til að fela þessar staðreyndir sem kúrdískir gestir hingað til lands báru nýverið fram og eru líka staðfestar í alþjóðsamfélaginu. Kúrdar búa í fimm þjóðríkjum, flestir í Tyrklandi, Írak og Íran, færri í Sýrlandi og Armeníu, og vilja eðlilega sjálfstjórn og friðsamlega sambúð við aðrar þjóðir innan allra landanna. Þeir eru næst takmarki sínu í Norður-Írak.

Íslandi, með sínar áherslur á mannréttindi, ber að aðstoða Kúrda við að ná sama takmarki og er ofarlega í hugum annarra þjóða.

Almenningur í Níkaragva þjáist

Í Níkaragva, landi sem íslensk stjórnvöld og sérfræðingar hafa aðstoðað, eru alvarleg mannréttindabrot framin á hverjum degi. Friðsöm mótmæli almennings gegn félagslegum áherslum stjórnvalda hófust í apríl 2018. Viðbrögðin hafa verið harkaleg og þau stigmagnast; hundruð manna hafa látist, nær allt almennir borgarar, mörg hundruð horfið með öllu eða verið fangelsuð og tugir þúsunda hafa flúið land. Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna sendi frá sér skýrslu um ástandið í landinu, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur flutt fréttir af flóttamannastraumnum. Amnesty International hefur gefið út tvær skýrslur um ástandið og Samtök Ameríkuríkja, OAS, hafa gefið út eina skýrslu. Fjórtán lönd, þar á meðal öll Norðurlöndin, Bretland og Bandaríkin (!), standa að sameiginlegri yfirlýsingu um stöðuna, sem kristallast í aðförum að frjálsum félagasamtökum í landinu (sjá: https://www.state.gov/r/pa/prs/ps/2018/12/288257.htm).

Mannréttindalandið Ísland þarf nú að taka af skarið og taka undir gagnrýni á mannréttindabrot stjórnar Sandínista og Daníels Ortega.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×