Fangelsisdómur fyrrverandi forseta Brasilíu tvöfaldaður Kjartan Kjartansson skrifar 7. febrúar 2019 08:29 Dæmdir menn fá oft reynslulausn eftir að þeir hafa afplánað þriðjung fangelsisdóms í Brasilíu. Lula gæti nú ekki losnað fyrr en eftir átta ár í stað fjögurra. Vísir/EPA
Dómstóll í Brasilíu hefur dæmt Luiz Inácio Lula da Silva, fyrrverandi forseta landsins, í tólf ára og ellefu mánaða fangelsi fyrir spillingu. Lula afplánar fyrir tólf ára dóm. Lögmenn hans segja að hann ætli að áfrýja dómnum. Í dómnum yfir Lula kemur fram byggingarveldið OAS hafi gert verulegar endurbætur á sveitasetri þar sem Lula var tíður gestur. Fyrirtækið er í miðpunkti meiriháttar spillingarmáls. Lula hefur neitað allri sök og fullyrði að hann hafi ekki átt húsið. Dómarinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að Lula hafi notað húsið meira en eigandinn og hefði skipað fyrir um framkvæmdirnar. „Ákærði fékk þessi óréttmætu hlunnindi í krafti embættis síns sem forseti lýðveldisins sem menn krefja um fyrirmyndarhegðun,“ sagði í dómsorði, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Lula, sem er 73 ára gamall, telur að málin gegn honum sé runnin undan rifjum pólitískra andstæðinga. Þeim hafi verið ætlað að koma í veg fyrir að hann byði sig fram til forseta aftur.
Brasilía Tengdar fréttir Lula með forystu í könnunum þrátt fyrir spillingardóm Skoðanakannanir benda til þess að Lula da Silva hafi aukið forskot sitt á aðra frambjóðendur. Ólíklegt er þó talið að hann fái að bjóða sig fram. 20. ágúst 2018 15:29 Mest lesið Dómur Sigmars fyrir að nauðga stúlku á göngustíg stendur Innlent Samþykktu samhljóða að sparka ferðaþjónustufyrirtæki úr Bakkafirði Innlent Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn Innlent Flosi fer í formanninn: „Ég lít ekki á mig sem fulltrúa neinna fylkinga“ Innlent Sjáðu herbergið sem Samfó vill en Sjallar neita að yfirgefa Innlent Búið að ná upp gögnum úr flugstjórnarklefa farþegavélarinnar Erlent Gagnrýna að einkarekstri leikskóla hafi verið haldið frá bæjarstjórn Innlent Næsta lægð skellur á landið og von á asahláku og hvassvirði Veður Sprautan sprakk og konan heppin að halda auganu Innlent Nærri helmingur segir Danmörku standa ógn af Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Morð á kóranbrennumanni gæti tengst erlendu ríki Líkfundur í ánni þar sem síðast sást til tvíburasystra Segja að flytja þurfi 2.500 börn frá Gasa til að bjarga lífi þeirra Nærri helmingur segir Danmörku standa ógn af Bandaríkjunum Búið að ná upp gögnum úr flugstjórnarklefa farþegavélarinnar Kenndi Biden, flugmönnum, flugumferðarstjórum og „DEI“ um slysið Þyrlan í hefðbundnu æfingarflugi Merkel setur ofan í við arftaka sinn vegna stuðnings öfgahægrimanna Taka norsku stjórnina úr sambandi vegna orkumála Búið að ná 28 líkum upp úr ísilögðu vatninu Íhaldsmenn taka höndum saman við öfgamenn í aðdraganda kosninga Rússneskir heimsmeistarar meðal farþega vélarinnar Norska stjórnin gæti sprungið í dag Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð UNRWA hættir líklega allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag Nítján lík sögð hafa fundist eftir flugslys í Washington Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Tekur formlega völd í Sýrlandi en heitir kosningum Fjórir Norðmenn látnir eftir snjóflóð í Ölpunum Vill senda þrjátíu þúsund innflytjendur til Guantánamo Draga minnisblað til baka eftir mikla óreiðu Fjöldi rúmenskra málaliða gafst upp í Rúanda Tengja hrinu sprenginga í Svíþjóð við glæpasamtök Líf norsku stjórnarinnar hangir á bláþræði vegna fjórða orkupakkans Segir Selenskí ólögmætan og ófæran um að skrifa undir eitt né neitt Alþjóðastofnanir draga saman seglin vegna Trump Býður milljónum starfsmanna að hætta gegn átta mánaða biðlaunum Áttatíu og fimm prósent vilja ekki tilheyra Trump Segir Rússa hafa ætlað að ráða fleiri iðnaðarleiðtoga af dögum Sjá meira
Lula með forystu í könnunum þrátt fyrir spillingardóm Skoðanakannanir benda til þess að Lula da Silva hafi aukið forskot sitt á aðra frambjóðendur. Ólíklegt er þó talið að hann fái að bjóða sig fram. 20. ágúst 2018 15:29