Dagbók lögreglu: Íbúar upplifa óöryggi vegna erlendra útigangsmanna Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2019 07:38 Lögreglunni barst einnig tilkynning um líkamsárás í Kópavogi á sjötta tímanum í gær, þar sem maður hafði verið skorinn. Vísir/Vilhelm
Íbúar í Fossvogshverfi segjast upplifa óöryggi vegna erlendra útigangsmanna sem séu á ferli í hverfinu. Íbúarnir segja þá sitja ölvaða á gönguleiðum og þeim fylgi sóðaskapur. Þeir segjast varla þora að hafa börn sín ein utandyra. Útigangsmennirnir eru sagðir halda til í skógi í hverfinu og hafa íbúar sakað þá um þjófnað. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Lögreglunni barst einnig tilkynning um líkamsárás í Kópavogi á sjötta tímanum í gær, þar sem maður hafði verið skorinn. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Slysadeild til aðhlynningar en vildi enga aðstoð frá lögreglu. Tilkynning barst um þjófnað í íþróttahúsi í Reykjavík í gær þar sem dýrum úlpum, síma, greiðslukorti og fleira var stolið. Málið er í rannsókn en í dagbók lögreglu segir að mögulega sé vitað hverjir hafi verið að verki. Umferðaróhapp varð á Bústaðavegi í gærkvöldi þar sem tveir bílar lentu saman á gatnamótum. Talið er að öðrum bílnum hafi verið ekið yfir á rauðu ljósi. Engin slys urðu á fólki en ökumaður annars bílsins var þó fluttur til aðhlynningar vegna brjóstverkjar. Næturvörður hótels þurfti að brjóta upp hurð salernis í nótt þegar gestur sem hafði farið þar inn svaraði ekki félögum hans. Í ljós kom að hann var hafði sofnað ölvunarsvefni og reyndist í góðu lagi. Þá reyndist ökumaður sem stöðvaður var í gær vera undir áhrifum fíkniefna. Hann er einnig grunaður um vörslu og sölu fíkniefna og farþegi í bílnum er grunaður um vörslu fíkniefna og brot á vopnalögum. Þar að auki var bíllinn ótryggður og voru númerin tekin af honum.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Sjá meira