Það tók starfsmenn Rauða krossins sex vikur að horfa á alla þættina sem hafa verið sýndir og gera yfirlit um þá stríðsglæpi sem framdir hafa verið. Þeir eru þó nokkrir, alls 103 talsins yfir sjö þáttaraðir, og hetjur þáttanna eru alls ekki saklausar.
Niðurstaða þessarar sex vikna vinnu var tekin saman í sérstaka skýrslu.
Versti stríðsglæpamaður Game of Thrones er Ramsay Bolton. Eðlilega. Hann hefur framið sautján stríðsglæpi samkvæmt Rauða krossinum.
Hann hefur sex sinnum gerst sekur um pyntingu. Þá hefur hann fjórum sinnum gerst sekur um að ganga á bak orða sinna. Það er að segjast ætla að gera eitthvað gott en ætla sér í rauninni að svíkja loforð sitt. Hann hefur tekið gísla, drepið fanga sína og særða menn. Hann hefur einnig beitt vopnum sem valda óþarfa sársauka og brotið gegn tveimur aðilum kynferðislega. Að endingu hefur hann ráðist gegn almennum borgurum.

Þá er henni gert að hafa sex sinnum brotið stríðsglæpi með aftökum. Hún hefur einnig beitt pyntingu, ráðist gegn almennum borgurum og lýst því yfir í upphafi árásar að enginn muni fá grið.
Á móti kemur að hún hefur einnig reynt að vernda almenna borgara í árásum sínum og beint því til hermanna sinna að ráðast eingöngu á hernaðarlega mikilvæg skotmörk.

Í fjórða sæti eru þrír aðilar. Næturkonungurinn sjálfur er þeirra á meðal en hann hefur framið sex stríðsglæpi. Glæpir hans eru þrælahald, notkun barnahermanna, að ráðast á almenna borgara og menningarmannvirki. Honum er einnig gert að hafa beitt eldvopni gegn mannvirki sem tengist ekki hernaði.
Sons of the Harpy hafa einnig framið sex stríðsglæpi í þáttunum, enda var um hryðjuverkasamtök að ræða. Brot þeirra snúa að mestu að því að brjóta gegn almennum borgurum, auk þrælahalds.
Þar komum við að Jon Snow sem hefur einnig gerst sekur um sex stríðsglæpi. Hann hefur fjórum sinnum gerst sekur um að beita barnahermönnum og tvisvar sinnum um pyntingar.
Rauði krossinn bendir þó á að hann hafi reynt að vernda borgara og stríðsfanga.

Einhverra hluta vegna hefur Cersei þó einungis framið þrjá stríðsglæpi, þrátt fyrir að vera mögulega versta persóna þáttanna.