Tóku blóðsýni með valdbeitingu Birgir Olgeirsson skrifar 10. júní 2019 07:15 Lögreglan hafði í ýmsu að snúast á vaktinni í gærkvöldi og nótt. vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beitti ökumann valdbeitingu til að ná blóðsýni úr honum vegna rannsóknar máls í nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en ökumaðurinn var stöðvaður í 101 Reykjavík á þriðja tímanum nótt. Var hann grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum vímuefna og akstur án réttinda, en hann hafði aldrei öðlast réttindi. Lögreglan segir manninn hafa neitað að hlýta sýnatöku vegna rannsóknar máls og var blóðsýnið því tekið með valdbeitingu. Lögreglan hafði einnig afskipti af ökumanni í hverfi 101 eftir að bifreið hans hafði rekist utan í kyrrstæða bifreið. Var ökumaðurinn grunaður um ölvun við akstur, akstur án réttinda, fyrir vörslu fíkniefna og umferðaróhapp. Rétt fyrir klukkan 10 í gærkvöldi var tilkynnt um eignaspjöll á rafmagnsvespu í Breiðholti. Var hjólið mikið skemmt eftir tilraun manns til að stela rafgeymi hjólsins. Rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi hafði lögregla afskipti af tveimur erlendum mönnum sem grunaðir eru um þjófnað á tómum flöskum úr söfnunaríláti Skátanna. Um klukkan þrjú í nótt var tilkynnt um mann sofandi ölvunarsvefni í stigagangi fjölbýlishúss en hann var vistaður í fangageymslu sökum ástands.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira