Samdráttur hjá KúKú Campers sem rekja má til falls WOW air Vésteinn Örn Pétursson skrifar 9. júlí 2019 08:30 Samdráttur hjá KúKú Campers nemur um 10-13 prósentum, að sögn framkvæmdastjórans, Viktors Ólasonar. Á myndinni má sjá bíla fyrirtækisins ásamt bílum GoCampers, en félögin leigja sama geymslusvæðið. Vísir/Vilhelm
Viktor Ólason, framkvæmdastjóri KúKú Campers segir skör minna vera að gera hjá fyrirtækinu heldur en í fyrra. Júní 2019 hafi þó verið gjöfulli en sami mánuður í fyrra. Samdrátturinn er um 10-13 prósent, eftir því við hvað er miðað. Hann segir að rekja megi samdráttinn till falls WOW air í mars á þessu ári. Í samtali við Vísi segist Viktor geta staðfest að minna sé að gera heldur en á síðasta ári. „Frá áramótum til dagsins í dag þá erum við að tala um í kring um 10-13 prósenta samdrátt, eftir því hvort við erum að tala um pening eða fjölda leigðra bíla.“ Aðspurður segir Viktor bersýnileg tengsl milli samdráttarins og falls WOW air sem ferðaþjónustufyrirtækið hefur ekki farið varhluta af. „Það byrjaði að dragast saman strax frá Bandaríkjunum um áramótin, þegar WOW hætti að fljúga á ákveðna áfangastaði í Bandaríkjunum. Svo fækkaði eitthvað hjá Icelandair líka, þannig að við sáum strax breytingu þá.“Viktor Ólason, framkvæmdastjóri KúKú Campers.Viktor segir fyrirtækið þó vera að rétta úr kútnum og bendir því til stuðnings á að júnímánuður þessa árs hafi fært KúKú Campers meiri viðskipti heldur en sami mánuður í fyrra. Þannig líti bókanir fyrir júlímánuð einnig vel út. „En ef þú tekur það sem af er árinu, sem heild, þá er þetta aðeins niður á við.“Enn virk samkeppni þrátt fyrir samdrátt Viktor segist ekki merkja samdrátt í samkeppni á sviði ferðabílaleigu. Þannig hafi engin fyrirtæki á markaðnum beinlínis orðið falli WOW air að bráð. „Svo verður haustið að leiða það í ljós hvað verður og hvernig menn koma undir sumrinu.“ Viktor segist þó vita dæmi þess að einhver fyrirtæki í svipuðum rekstri og KúKú Campers hafi brugðið á það ráð að lækka verð langt undir það sem þarf til þess að reksturinn beri sig, og séu í raun að undirbjóða markaðinn. „Þegar upp er staðið er það ekki vænlegt til lengri tíma, þannig verð.“ Viðskiptavinir bóka seinna en áður fyrr Viktor segir breytingu hafa orðið á bókunarmunstri viðskiptavina fyrirtækisins. Það er af sem áður var þegar heilu sumrin voru uppbókuð strax á vorin. Nú bóki ferðalangar bílana með mun styttri fyrirvara. „Fólk er að bóka seinna, nær afhendingardegi heldur en áður. Kannski var sumarið bara uppbókað í byrjun mái fyrir nokkrum árum síðan. En núna til dæmis eru bókanir sem eru að berast um helgina allar inn í júlí og ágúst.“Margir bíla fyrirtækisins standa á stæði þess í Hafnarfirði. Framkvæmdastjórinn er þó hvergi banginn og segir fyrirtækið vera að rétta úr kútnum.Vísir/VilhelmÁ þessum tíma árs hafi venjulega verið rólegt að gera í sölunni, búið hafi verið að bóka langstærstan hluta allra bíla. „En eins og bara í dag [8. júlí 2019] er ég kominn með sex bókanir og allar nema ein eru júlí, hin er í ágúst,“ segir Viktor. Framkvæmdastjórinn segir þessa staðreynd gera fyrirtækinu ögn erfiðara um vik að áætla sig fram í tímann. Hann kveðst þó ekki hafa áhyggjur af sölunni sjálfri, sem er að hans sögn stöðug. „Þetta er kannski verra upp á september og október, hvað við þurfum mikið af starfsfólki. Hitt er lítið mál, við bara parkerum bílunum og tökum þá af númerum ef þeir fara ekki út.“ Aðspurður segist Viktor ekki viss hvað valdi þessari breytingu á bókunarmynstri. „Kannski er fólk að bíða eftir því að fá flug á góðu verði. Bandaríkjamenn bóka almennt nær ferðadegi en við erum að sjá þetta frá Evrópu líka. Kannski eru flugfélögin með tilboð þegar nær dregur ferðadegi. Þetta er vissulega breyting frá því sem áður var en nákvæmlega af hverju get ég ekki séð.“
Ferðamennska á Íslandi Hafnarfjörður WOW Air Mest lesið Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Neytendur Sýn fær flýtimeðferð Viðskipti innlent Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Neytendur Möguleiki á að verndaraðgerðirnar verði felldar fyrr úr gildi Viðskipti innlent Fjögurra billjóna hagnaður léttir fyrir fjárfesta Viðskipti erlent Fyrirtæki óvenju virk í fasteignakaupum í október Viðskipti innlent Ístak byggir Fossvogsbrú Viðskipti innlent Ísbúð Huppu flytur af Nesinu á Ægissíðuna Viðskipti innlent Ungum konum fjölgar í lögreglunni Atvinnulíf Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Möguleiki á að verndaraðgerðirnar verði felldar fyrr úr gildi Sýn fær flýtimeðferð Ístak byggir Fossvogsbrú Fyrirtæki óvenju virk í fasteignakaupum í október Ísbúð Huppu flytur af Nesinu á Ægissíðuna Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Gera ráð fyrir svipuðum hagvexti og í Covid Íslandsbanki lækkar vexti Óboðlegt að stórir aðilar auki arðsemi í krafti fákeppni Bentu hvor á annan og hlutu ólík örlög Taka minna mark á leiðsögn nefndarinnar og spá lækkunum Fyrrverandi forseti Hæstaréttar fer yfir svör gervigreindarinnar Indó ríður á vaðið Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Fullt tilefni enda hafi aðstæður gjörbreyst á skömmum tíma Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Efnahagslegt tjón lítið ef nokkuð en öll prinsipp þverbrotin „ESB hefur nú sýnt klærnar og sitt rétta andlit“ Frá Sýn til Fastus Þrír forstöðumenn til starfa hjá Íslandsbanka Kortavelta á fljúgandi siglingu og vaxtalækkun ólíkleg „Það er verið að brjóta gegn grundvallaratriðum EES-samningsins“ „Varnarsigur“ að fá inn texta um samráð um áhrif tollanna Selur hjörð en ekki jörð Samþykktu verndartolla sem bitna á Íslandi og Noregi Orri einbeitir sér að bæjarmálunum og Kári tekur við Sjá meira