Kaffitár tapaði 115 milljónum Kristinn Ingi Jónsson skrifar 10. júlí 2019 09:30 Tap varð á rekstri Kaffitárs í fyrra. Fréttablaðið/Anton Brink
Kaffitár tapaði 115 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt nýlegum ársreikningi kaffihúsakeðjunnar, en til samanburðar varð 40 milljóna króna tap á rekstri keðjunnar árið 2017. Kaffihúsakeðjan, sem rekur sjö kaffihús á höfuðborgarsvæðinu auk tveggja handverksbakaría undir nafni Kruðerís, skilaði rekstrartekjum upp á alls 1.073 milljónir króna á síðasta ári og drógust tekjurnar saman um 8,3 prósent frá fyrra ári þegar þær voru um 1.170 milljónir króna. Rekstrartap Kaffitárs nam tæplega 18 milljónum króna í fyrra, að því er fram kemur í ársreikningnum, borið saman við rekstrarhagnað upp á 25 milljónir króna árið 2017. Eignir keðjunnar voru 1.338 milljónir króna í lok síðasta árs en á sama tíma var eigið fé hennar um 483 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið því 36 prósent. Samkeppniseftirlitið samþykkti sem kunnugt er í lok mars síðastliðins kaup Nýju kaffibrennslunnar, systurfyrirtækis heildsölu Ó. Johnson & Kaaber, á Kaffitári en seljandi var Aðalheiður Héðinsdóttir sem stofnaði kaffihúsakeðjuna árið 1990.
Birtist í Fréttablaðinu Veitingastaðir Mest lesið Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Búið að draga tennurnar úr jagúarnum Viðskipti innlent Vona að Musk takmarki tolla Trumps Viðskipti erlent Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Viðskipti innlent Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Sjá meira