Skoðun

Skólinn okkar

Sævar Reykjalín skrifar
Síðan mitt fyrsta barn var skráð í leikskóla hef ég tekið þátt í starfi foreldrafélaga. Hvort sem það er leikskóli, grunnskóli eða hjá íþróttafélaginu þá hefur það verið auðsótt mál að taka þátt. Það er samt eitt sem hefur einkennt starf mitt fyrir foreldrafélög skólanna og það er að á 2 ára fresti koma tillögur frá misvitrum stjórnmálamönnum um að stokka þurfi upp skólastarfi í mínu hverfi. Núna síðast var ekki bara skólinn í mínu hverfi undir, heldur allt skólastarf í norðanverðum Grafarvogi.

Þessi endalausa barátta hefur tekið sinn toll enda ætti það ekki að vera aðal viðfangsefni neins íbúa í Reykjavík að tryggja að aðalskipulag hverfisins haldi, að þjónusta við börn sé ekki skert og að búið sé að öryggi og námi barna eins og þau eiga skilið. Stjórnmálamenn tala um það í hvert skipti sem þeir reyna að vega að námi barna minna að það sé gert til að gera námið betra, tryggja „umhverfisvænan skólaasktur“ og að stofna „Nýsköpunarskóla“; allt hugtök sem stjórnmálamenn kasta fram í von um að einfaldir kjósendur líti á sem framfaraskref. Umhverfisvænn skólaakstur er þannig útfærður að leggja á niður skólaakstur í hverfinu. Umhverfisvænna verður það varla! Nýsköpunarskóli gengur út á að fjölga börnum á hvern kennara, láta þau labba lengri vegalengdir í skólann, fækka fermetrum fyrir námið, setja krakka í skúra fyrir utan skólabyggingu og að þrengja enn meir að, jafnvel úthýsa, frístundastarfi.

Fyrr í ár söfnuðust á annað þúsund undirskriftir gegn þessum tillögum þannig að ég geti sagt fyrir hönd foreldra í norðanverðum Grafarvogi að við afþökkum pent þessa framtíðarsýn núverandi meirihluta. Nú keppast menn við að reyna að loka einum skóla og þar er öllum brögðum beitt og nú síðast voru lög nr 91/2008 brotin til að hindra eðliega umfjöllun skólaráðs og á því ætlar enginn að taka ábyrgð.

Ef lagður væri sami metnaður og orka í að gera skólastarfið í Grafarvogi betra í stað þess að reyna valda stórtjóni þá væri hægt að gera ótrúlega hluti, hægt að vera fyrirmynd annarra sveitafélaga, jafnvel annarra landa.

En það þarf að spara, þetta má ekki kosta neitt. Það hefur komið í ljós að viðhald skóla í Reykjavík hefur verið stórkostlega vanrækt og að það mun kosta hundruð milljóna í framkvæmdir á næstu árum. Reykjavíkurborg á í mestum vandræðum með að klára að byggja skólann í Úlfarsárdal og er þeim framkvæmdum sífellt að seinka. Og að lokum þá þarf að byggja nýjan skóla í hverfi formanns skóla- og frístundaráðs en þar á að rísa grunnskóli sem verður minni og fámennari en sá sem þeir vilja nú loka vegna smæðar. Allt kostar þetta peninga, peninga sem taka á frá útsvarsgreiðendum og börnum í Grafarvogi.

Höfundur er Reykvíkingur og þriggja barna faðir.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×