Lífið

Bernie Sanders í viðtali hjá Cardi B

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sanders og Cardi röbbuðu saman.
Sanders og Cardi röbbuðu saman. Skjáskot/YouTube
Bernie Sanders, óháður öldungadeildarþingmaður frá Vermont og frambjóðandi í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, settist niður með hip-hop stjörnunni Cardi B og ræddi hans helstu stefnumál í aðdraganda forvalsins.

Sanders og Cardi fóru um víðan völl og ræddu ýmis vandamál sem steðja að bandarískum almenningi. Meðal þess sem bara á góma var skuldastaða bandarískra námsmanna og landlægt lögregluofbeldi í landinu, sem hefur farið hátt í fjölmiðlum á síðustu árum.

Eins ræddu þau sameiginlega aðdáun sína á Franklin D. Roosevelt, 32. forseta Bandaríkjanna, en hann var í embætti frá 1933 og til 1945, eða þegar síðari heimsstyrjöld lauk.

Nokkuð óvenjulegt verður að teljast að forsetaframbjóðandi setjist niður til viðtals með hip-hop stjörnu en Sanders virðist meðvitað vera að reyna að ná til yngri hóps kjósenda. Snemma í þessum mánuði settist Sanders til að mynda niður með grínistanum og sjónvarpsmanninum Joe Rogan í hlaðvarpsþætti hans. Þátturinn er einn sá vinsælasti í Bandaríkjunum, og þá sérstaklega meðal ungs fólks.

Viðtal Cardi B við Bernie Sanders, sem var birt á YouTube-rás Sanders í gær, má sjá hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.