Hrottafengin líkamsárás á Andy Dick náðist á öryggismyndavél Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. ágúst 2019 18:21 Margir kannast við grínistann Andy Dick. Vísir/Getty
Lögreglan í New Orleans í Bandaríkjunum rannsakar nú hrottafengna líkamsárás sem grínistinn Andy Dick varð fyrir utan skemmtistað í Franska hverfinu í borginni um helgina. Árásin náðist á öryggismyndavél. Á myndbandinu má sjá karlmann í dökkum fatnaði snúa sér skyndilega að Dick, sem hafði verið að skemmta í bænum síðastliðið föstudagskvöld. Sjá má hvernig árásarmaðurinn lætur eitt högg dynja á Dick af fullum þunga, með þeim afleiðingum að Dick kastaðist í nærliggjandi byggingu áður en hann féll til jarðar. Sjálfur segir Dick að hann hafi verið meðvitundarlaus í um fimmtán mínútur eftir höggið. Var hann fluttur með skyndi á gjörgæslu þar sem hann undirgekkst rannsóknir vegna ótta um heilablæðingu. Lögreglan í New Orleans hefur þegar handtekið manninn sem grunaður er um árásina en ekki liggur fyrir hvað árásarmanninum gekk til. Dick er þekktur grínisti í Bandaríkjunum og hefur leikið í fjölda grínþátta og kvikmynda, ber þar helst að nefna The Ben Stiller Show og kvikmyndina Reality Bites.
Bandaríkin Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Fleiri fréttir Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sjá meira