Albanir ætla ekki að klúðra íslenska þjóðsöngnum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson í Elbasan skrifar 10. september 2019 16:30 Siggi Már reddar mörgu. Núna því að Albanir spili réttan þjóðsöng. vísir/óskaró
Albanir lentu í leiðinlegu atviki í útileik sínum í Frakklandi í undankeppni EM 2020 um helgina þegar Frakkar spiluðu óvart þjóðsöng Andorra fyrir leikinn en ekki þjóðsöng Albana. Albanir brjáluðust skiljanlega vegna þessara mistaka og neituðu að spila fyrr en þeir höfðu fengið sinn þjóðsöng. Leikurinn tafðist því og atvikið var mjög vandræðalegt fyrir Frakka. Albanir eru gestgjafar á móti Íslendingum í kvöld og nú er það á þeirra herðum að spila réttan þjóðsöng fyrir leikinn. Íslensku fjölmiðlamennirnir voru mættir snemma á völlinn í Elbasan og á undan öllum öðrum Íslendingum. Umsjónarmenn leiksins vildu vera 110 prósent vissir um að spila réttan þjóðsöng. Þeir sáu Sigurð Már Davíðsson, myndatökumann Stöðvar tvö og Vísis, vera að mynda á vellinum og kölluðu hann því til sín. Sigurður Már hélt fyrst að hann hefði gert eitthvað af sér en það var langt frá því. Albanir vildu bara fá Sigurð, sem eina Íslendinginn sem þeir sáu út á velli, til að votta það fyrir sig að þeir væru að spila íslenska þjóðsönginn. Íslenski þjóðsöngurinn var síðan spilaður og Sigurður Már gat létt áhyggjum þeirra með því að staðfesta að um réttan þjóðsöng var að ræða. Það verða því engin mistök gerð með þjóðsöngvana í kvöld.
Albanía EM 2020 í fótbolta Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira