Albanía

Albanía

Höfuðborg: Tírana. Mannfjöldi: 2,8 milljónir (2025). Flatarmál: 28.748 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Fé­lag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra af­sala

Artur Shehu, albanskur kaupsýslumaður sem er eftirlýstur í Albaníu fyrir meint peningaþvætti vegna fíkniefnasölu, er talinn hafa falsað afsöl af landi sem Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta, vill byggja umfangsmikinn dvalarstað á.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Tug­þúsundir mót­mæltu í Tirana

Tugþúsundir Albana mótmæltu í höfuðborginni Tirana í gærkvöldi, þrítugasta og fimmta daginn í röð. Kallað er eftir afsögn forsætisráðherrans Edi Rama, stjórnarskrárumbótum og raunhæfum aðgerðum gegn spillingu í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Reyndi að bragð­bæta ban­eitruðu mál­tíðina

Áströlsk kona sem er sökuð um að hafa myrt skyldmenni sín með baneitruðum sveppum viðurkenndi fyrir dómi að villtir sveppir kynnu að hafa verið í banvænni máltíð sem hún gaf þeim. Hún hefði bætt þurrkuðum sveppum út í réttinn vegna þess að hann hefði verið of bragðlaus.

Erlent
Fréttamynd

Segir sveppa­eitrunina hafa verið „hörmu­legt ó­happ“

Verjendur ástralskrar konu sem er sökuð um að hafa drepið tengdafjölskyldu sína með eitruðum sveppum segja að hún muni halda því fram að það hafi verið „hörmulegt óhapp“. Réttarhöld yfir konunni hófust í dag en hún er ákærð fyrir þrjú morð og tilraun til manndráps.

Erlent
Fréttamynd

Einn helsti rit­höfundur Albaníu er allur

Albanski rithöfundurinn Ismail Kadare er látinn. Hann er fæddur 1936 og lést 1. júlí á þessu ári. Kadare hefur verið talinn eitt helsta skáld og hugsuður 20. og 21. aldarinnar, en hann hefur barist mjög gegn alræði í skrifum sínum.

Erlent
Fréttamynd

12 tonn af sveppum í hverri viku frá Flúðasveppum

Eitt öflugasta fyrirtæki í Uppsveitum Árnessýslu, Flúðasveppir á Flúðum framleiðir nú 12 tonn af sveppum á viku og hefur varla undan að framleiða sveppi ofan í landsmenn. Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli í ár en á fyrstu árunum voru aðeins framleidd 500 kíló af sveppum á viku, sem þótti mjög gott þá.

Innlent
Fréttamynd

Manni og barni haldið í Leifs­stöð í þrjá­tíu tíma

Albanskur maður og ólögráða frænka hans hafa þurft að hírast í Leifsstöð í meira en þrjátíu klukkutíma. Lögreglan hótar að vísa honum úr landi en lögmaður mannsins segir hana ekki hafa heimild til þess. Dvalarleyfisumsókn sé enn þá í vinnslu.

Innlent
Fréttamynd

Játaði að hafa tekið við illa fengnum 7.100 evrum

Albönsk kona á fimmtugsaldri hefur verið dæmd í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tekið við 7.100 evrum af óþekktum aðila og ætlað að ferðast með þær til Póllands. Konan var sakfelld fyrir peningaþvætti en fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjaness að ekki hafi dulist að peningurinn hafi verið ávinningur refsiverðra brota.

Innlent
Fréttamynd

Löggan mætir á ráð­stefnu um hug­víkkandi efni

Söru Maríu Júlíudóttur, skipuleggjanda mikillar ráðstefnu um hugvíkkandi efni – Psycedelics in Medicine – sem fram fer í Hörpu 12. til 13. þessa mánaðar, verður að ósk sinni en fulltrúar lögreglunnar hafa boðað komu sína.

Innlent