Eins og áður hefur komið fram hefur auðkýfingurinn og fjárfestirinn Jim Ratcliffe keypt landsvæði með þekktum laxveiðiám á Norðausturlandi í gegnum fjárfestingafélagið sitt INEOS Group. Uppbygging hans er sögð hluti af aðgerðum til verndar laxinum, sem áætlaðar eru á næstu fimm árum, og snúa að því að útvíkka hrygningarsvæði laxins með byggingu nýrra laxastiga í Hafralónsá, Hofsá og Miðfjarðará í Vopnafirði. Þá er fyrirhugað að frjóvguðum hrognum verði sleppt í þessum ám í miklu magni, auk Selár.
„Þetta er mjög flókið verkefni og þetta er mjög stór verkefni og spennandi og ég held að þetta sé fyrsta verkefnið hér á Íslandi sem er sett af stað af einkaaðila,“ segir Elsa Möller, skógfræðingur og verkefnisstjóri skógræktar í Vopnafirði.
Elsa bendir á að til sé nokkur þekking erlendis, um áhrif eyðingar trjáa með fram ám, en lítil vitneskja sé um áhrif nýskógræktar. Hún segir veðurfarið á Norðausturlandi sérstakt í ljósi þess að sumar þar er stutt og veturnir langir sem hafi áhrif á gróðurfar. Á svæðinu sé mun kaldara en annars staðar.
„Þetta langtímaverkefni. Við vitum mjög margt um hvað gerist ef maður tekur skóg í burtu frá árfarveginum sem hefur mjög neikvæð áhrif og gerist býsna hratt en við vitum bara mjög lítið um hvað gerist við árfarveg ef við plöntum í kringum hann og þetta er eitthvað sem ég mun aldrei sjá árangurinn af. En við verðum að byrja og við verðum að sjá hvað gerist og kannski gætum við bætt lífríkið kannski mun þetta verða til bóta til framtíðar,“ segir Elsa.