Einn milljarður geti orðið að tíu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 30. október 2019 11:00 Vél Air Iceland Connect á Akureyrarflugvelli. Vísir/Tryggvi Páll
Það að engu fjármagni sé áætlað til uppbyggingu Akureyrarflugvallar sem millilandaflugvallar í drögum að samgönguáætlun næstu fimm ára gengur þvert gegn yfirlýstri stefnu stjórnvalda. Þetta er mat framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands. Milljarðs fjárfesting í flugstöðinni geti skilað tíu milljarða ávinningi.Í drögum að samgönguáætlun fyrir árin 2020 til 2034, sem kynnt var á dögunum, kemur fram að það sé stefna stjórnvalda að auka verði millilandaflug um Akureyri og Egilsstaði, en fjallað var um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.Sjá einnig:Beið átekta á meðan allt var í gangi og fann aðra leið til ÍslandsÚr drögum að samgönguáætlun 2020-2034.VÍSIR/GRAFÍKSamhliða voru drög að samgönguáætlun fyrir árin 2020 til 2024 kynnt. Þar er aðeins gert ráð fyrir 78 milljón króna framlagi til Akureyrarflugvallar, til viðhalds og reglubundinnar endurnýjunar búnaðar. Ekki er minnst á fjármagn til uppbyggingar vallarins sem millilandaflugvallar.Ríkisstjórnin hafi verið mjög skýr hingað til „Gríðarleg vonbrigði, það er alveg skýrt þegar við lesum hana að það er ekki gert ráð fyrir millilandaflugi um Akureyrarflugvöll vegna þess að það er ekki sett króna í fjárfestingar á flugvellinum,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands um drögin.Fjármunir sem eyrnamerktir eru Akureyrarflugvelli í drögum að samgönguáætlun fyrir árin 2020-2024.VÍSIR/GRAFÍKSjá einnig:Jón segir uppbyggingu varaflugvalla ekki þola bið Uppbygging Akureyrarflugvallar hefur verið í brennidepli heimamanna undanfarin ár, þannig telja þeir að renna megi styrkari stoðum undir ferðaþjónustu á Norðurandinu en einnig landinu öllu. „Ríkisstjórnin hefur verið mjög skýr að hún vill fá þessa uppbyggingu á millilandaflugi þannig að það er mjög skrýtið að sjá samgönguáætlunina koma svona út.“ Arnheiður Jóhannsdóttir er framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.Fréttablaðið/Anton Brink/VölundurRímar ekki við samræður við stjórnvöld Lítið samræmi sé á milli hinnar fyrirhugðu samgönguáætlunar og nýlegum samtölum heimamanna við stjórnvöld um flugvöllinn„Þetta rímar engan veginn og engan veginn við þau skilaboð og svör sem við fáum ennþá í dag þó búið sé að birta þessar tölur. Það er ekki í takt við neitt af því sem okkur hefur verið lofað og þetta er heldur ekki í takt við þann árangur sem við höfum náð.“Millilandaflug til Akureyrar hefur skilað milljarði inn í hagkerfið á árinu.„Það slær mann dálítið að menn geti ekki séð ávinninginn, möguleikann og tækifærin sem eru hér.“Fyrsta flugi Transavia og Voigt var vel tekið á Akureyri í vor.Vísir/Tryggvi PállFimm ferðir á viku, 40 þúsund farþegar Því er vilji fyrir því á meðal heimamanna að hamra járnið meðan það er heitt, eins milljarðs króna fjárfesting geti skilað sér margfalt til baka.Sjá einnig:Telur að fjárfesting í Akureyrarflugvelli munu margborga sig „Við getum sagt að hér er það flugstöðin okkar sem er sprungin. Við getum sagt að það væri milljarður í þá fjárfestingu. Hún gæti verið að skila okkur, sú breyting og síðan markaðssetning gæti verið að skila fimm ferðum á viku hér reglulega sem gæti verið að skila okkur kannski 40 þúsund farþegum á ári og tíu milljarða innspýtingu inn í hagkerfið,“ segir Arnheiður.Gangi þetta allt saman eftir og þetta verði samþykkt tiltölulega óbreytt, hvaða áhrif hefur það á ykkur? „Þá lit ég þannig á við hættum að reyna að koma á millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. Það þýðir að ferðaþjónustan á Norðurlandi, Austfjörðum og Vesturlandi á ekki möguleika varðandi vetrarferðarþjónustuna.“
Akureyri Ferðamennska á Íslandi Fréttir af flugi Samgöngur Tengdar fréttir Jón segir uppbyggingu varaflugvalla ekki þola bið Varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar og fyrrverandi samgönguráðherra segir uppbyggingu varaflugvalla á Akureyri og Egilsstöðum ekki þola bið. Breyta þurfi fyrirliggjandi samgönguáætlun og þar með fjárlögum næsta árs til að framkvæmdir geti hafist. 29. október 2019 12:14 Telur að fjárfesting í Akureyrarflugvelli muni margborga sig Ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi kölluðu í dag eftir skýrum svörum frá yfirvöldum hvort að leggjast eigi í uppbyggingu á Akureyrarflugvelli eða ekki. 15. október 2019 20:30 Vilja skýr svör um framtíð Akureyrarflugvallar Ferðaþjónustan á Norðurlandi vill fá skýr svör um það hvort til standi að byggja upp Akureyrarflugvöll sem millilandaflugvöll eða ekki. Stór ráðstefna um millilandaflug á Norðurlandi verður haldin á Akureyri í dag. 15. október 2019 12:15 Icelandair fagnar tillögum um forgang á uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar Icelandair fagnar þeirri tillögu sem kemur fram í drögum að grænbók um stefnu stjórnvalda í málefnum flugrekstrar og flugtengdrar starfsemi á Íslandi, að uppbygging Egilsstaðaflugvallar verði sett í forgang hvað varðar uppbyggingu á varaflugvöllum fyrir Keflavíkurflugvöllum. 21. ágúst 2019 11:15 Beið átekta á meðan allt var í gangi og fann aðra leið til Íslands Allir á Íslandi ættu að taka alvarlega að láta það verða að veruleika að Akureyrarflugvöllur verði byggður upp sem önnur gátt inn í landið. Þetta segir Cees van der Bosch, eigandi Voigt Travel. 17. október 2019 09:15 Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira
Jón segir uppbyggingu varaflugvalla ekki þola bið Varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar og fyrrverandi samgönguráðherra segir uppbyggingu varaflugvalla á Akureyri og Egilsstöðum ekki þola bið. Breyta þurfi fyrirliggjandi samgönguáætlun og þar með fjárlögum næsta árs til að framkvæmdir geti hafist. 29. október 2019 12:14
Telur að fjárfesting í Akureyrarflugvelli muni margborga sig Ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi kölluðu í dag eftir skýrum svörum frá yfirvöldum hvort að leggjast eigi í uppbyggingu á Akureyrarflugvelli eða ekki. 15. október 2019 20:30
Vilja skýr svör um framtíð Akureyrarflugvallar Ferðaþjónustan á Norðurlandi vill fá skýr svör um það hvort til standi að byggja upp Akureyrarflugvöll sem millilandaflugvöll eða ekki. Stór ráðstefna um millilandaflug á Norðurlandi verður haldin á Akureyri í dag. 15. október 2019 12:15
Icelandair fagnar tillögum um forgang á uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar Icelandair fagnar þeirri tillögu sem kemur fram í drögum að grænbók um stefnu stjórnvalda í málefnum flugrekstrar og flugtengdrar starfsemi á Íslandi, að uppbygging Egilsstaðaflugvallar verði sett í forgang hvað varðar uppbyggingu á varaflugvöllum fyrir Keflavíkurflugvöllum. 21. ágúst 2019 11:15
Beið átekta á meðan allt var í gangi og fann aðra leið til Íslands Allir á Íslandi ættu að taka alvarlega að láta það verða að veruleika að Akureyrarflugvöllur verði byggður upp sem önnur gátt inn í landið. Þetta segir Cees van der Bosch, eigandi Voigt Travel. 17. október 2019 09:15