Fyrir skömmu samþykkti bæjarstjórn Akureyrar fyrsta skrefið í vinnu sem miðar að því að breyta aðalskipulagi Akureyrar svo SS Byggi verði heimilt að byggja allt að fimm sex til ellefu hæða fjölbýlishús á reit á Oddeyrinni.
Sjá einnig: Svona líta hugmyndir að uppbyggingunni á Oddeyrinni út
Reiturinn er um það bil beint á móti flugbraut Akureyrarflugvallar og hafa ýmsir hagsmunaaðilar bent á að ellefu hæða fjölbýlishús geti haft áhrif á aðflug og flugtak þeirra flugvéla sem leið eiga um völlinn.
Frestur til að gera athugasemdir runninn út
Til þess að hugmyndir SS Byggis verði að veruleika þarf að breyta skipulagi á reitnum en núgildandi skipulag gerir ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum á reitnum. Sem fyrr segir samþykkti bæjarstjórnin á Akureyri á dögunum skipulagslýsingu vegna reitsins, en það er fyrsta skrefið í skipulagsvinnunni.Ýmsum hagsmunaaðilum var boðið að senda inn umsögn um skipulagslýsinguna, þar á meðal Isavia. Frestur til að skila inn umsögn rann út um síðustu mánaðamót.

Athugasemdir Isavia eru í fimm liðum
Í umsögn Isavia, sem fréttastofa hefur undir höndunum, eru settar fram fimm athugasemdir og ábendingar vegna skipulagslýsingarinnar. Er þar meðal annars bent á að samkvæmt skipulagsreglum Akureyrarflugvallar séu hindrunarfletir á umræddu svæði í um 40 metra hæð.„Blokk sem er 11 hæðir er því farin að nálgast hindrunarflöt verulega þar sem má ætla að hún yrði um 37 metrar á hæð. Þetta svæði er viðkvæmara en ella þar sem staðsetning er nokkurn veginn í beinni stefnu út frá flugbraut flugvallarins,“ segir í umsögn Isavia.
Sjá einnig: Fullt út úr dyrum á íbúafundi um uppbyggingu á Oddeyrinni
Forsvarsmenn SS Byggis hafa sagt að hæsta byggingin samkvæmt þeim hugmyndum sem unnið er út frá sé 30 metrar.
Þá er einnig bent á í umsögn Isavia að miðað við ýtrustu kröfur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sé æskilegt að hámarkshæð húsa fari ekki yfir 30 metra miðað við fyrirhugaða staðsetningu fjölbýlishúsanna.
Er bent á að mikil þróun sé í hönnun flugferla og með nýjum aðflugsferlum sem byggist á gervihnattarleiðsögu opnist möguleiki á lægri aðflugslágmörkum.
„Háar byggingar á Oddeyri gætu því í framtíðinni takmarkað þá möguleika,“ segir í umsögninni.
Háar byggingar í flugstefnu geti haft áhrif á áhugasama flugrekendur
Akureyringar og nærsveitungar hafa að undanförnu barist fyrir því að auka millilandaflug um Akureyrarflugvöll og snert er á því máli í umsögn Isavia. Segir þar að Markaðsstofa Norðurlands og Isavia hafi hug á því að auka kynningu á Akureyrarflugvelli og Norðurlandi sem áfangastað.Sjá einnig: Hafa áhyggjur af því að uppbygging á Oddeyrinni muni þrengja að hafnarstarfsemi
Áhugasamir flugrekstraraðilar taki margt með í reikninginn þegar metið er hvort flugvellir séu fýsilegir eða ekki og þar geti háar byggingar í flugstefnu til og frá flugbraut haft sín áhrif.

„Byggingar eins og um ræðir í skipulagslýsingunni kunna því að auka á takmarkanir á nýtingu flugvallarins,“ segir í umsögn Isavia.
Óttast að kröfur komi fram um bann við flugi á ákveðnum tíma vegna hljóðvistar
Síðasta athugasemdin í umsögn Isavia snýr að hljóðvist þeirra íbúða sem kunna að verða reistar á svæðinu og bendir Isavia á að huga þurfi vel að því. Bent er á að eðlileg aðflugshæð á þessu svæði sé um 140 metrar en eðlileg flugtakshæð 75 til 80 metrar.
Þá lýsir Isavia sig reiðubúið til þess að fara yfir þau sjónarmið sem fram komi í umsögninni á fundi með skipulagsyfirvöldum á Akureyri og útskýra ástæður fyrir ábendingunum nánar ef þörf er talin á.
Hafa sagt að enginn áhugi sé fyrir því að byggja byggingar sem trufli flugöryggi
Þess ber að geta að í samtali við Vísi í október sagði Helgi Örn Eyþórsson, verkefnastjóri hjá SS Byggi, aðspurður um þá gagnrýni sem hugmyndirnar að fjölbýlishúsunum hafa fengið með tilliti til Akureyrarflugvallar að enginn vilji væri til staðar að byggja hús sem myndu skerða aðgengi að flugvellinum.„Okkar hugmyndir gera ráð fyrir að hæsta Seglið sé 30 metrar. Þess ber að geta að þetta eru tillögur, þetta eru ekki teikningar. Við munum aldrei vilja byggja einhverja byggð sem að truflar flugöryggi eða takmarkar möguleika Akureyrar til að byggja upp ferðaþjónustu. Það er ekki okkar áhugi enda fæst svona skipulag ekki samþykkt nema með samþykki og umsögn Isavia og væntanlega flugfélaga og annarra hagsmunaðila sem koma að því,“ sagði Helgi Örn.