Kapphlaupið á norðurslóðir Sigríður María Egilsdóttir skrifar 6. nóvember 2019 09:00 Heimurinn beinir nú ítrekað sjónum sínum að norðurslóðum. Krassandi og jafnvel hlægilegar fyrirsagnir á borð við að Bandaríkjaforseti vilji kaupa Grænland og að Kína lýsi því yfir að vera nærri-því-norðurslóðaþjóð, gefa vísbendingar um mun stærri áform þessara viðskiptastórvelda. Nýtt heimskapphlaup er hafið - kapphlaupið á norðurslóðirnar. En hvað felur það í sér? Og hvaða þýðingu hefur það fyrir litla þjóð í Atlantshafinu? Norðurslóðir eru, líkt og forseti Kína hefur sjálfur komist að orði, stútfullar af viðskiptalegum, pólitískum og hernaðarlegum tækifærum. Ástæður þessa eru nokkrar: Fyrir það fyrsta er að finna heilmiklar auðlindir á svæðinu. Talið er að þar fyrirfinnist verulegur hluti óuppgötvaðra olíu- og gasauðlinda heims, ásamt allskyns verðmætra málma og fiskveiðiauðlinda. Þá eru töluverðir rannsóknarhagsmunir fólgnir í geim- og segulsviðsrannsóknum á svæðinu. Að lokum, og einna helst, er ljóst að loftslagsbreytingar munu gera nýjar siglingarleiðir mögulegar. Bráðnandi ísbreiður gera harðgerum skipum kleift að ferðast um áður ófærar siglingarleiðir. Leiðir sem geta stytt flutningstíma milli Evrópu, Ameríku og Asíu um allt að þriðjung og gert þeim kleift að forðast áður óumflýjanlega og dýrkeypta flöskuhálsa á leið sinni um heimshöfin. Keppendur kynntir til leiks Líkt og ýjað var að í upphafi greinarinnar eru Bandaríkjamenn og Kínverjar helstu þátttakendur kapphlaupsins. Þrátt fyrir að aðrar þjóðir eyði töluverðum fjármunum í að taka þátt, jafnast það ekkert á við viðleitni eða getu hinna fyrrnefndu við að hasla sér völl á svæðinu, hvort heldur í gegnum fjárfestingar í allskyns innviðum, rannsóknarsamvinnu eða gegnum vinaleg samskipti við þarlend stjórnvöld og áhrifamenn. Og um það snýst kapphlaupið - að verða það sem kallast í grein þessari heimskautastórveldi, þ.e. að komast til slíkra valda að unnt sé að hafa áhrif á ákvarðanatöku á norðurslóðum og heimskautasvæðinu þegar til hennar kemur og geta nýtt sér þær auðlindir sem þar fyrirfinnast.GettyBandaríkjamenn komu sér þægilega fyrir á norðurslóðum á tímum kalda stríðsins og hafa síðan þá verið talin heimskautastórveldi. Þegar kalda stríðið leið undir lok hófu Bandaríkjamenn þó að beina sjónum sínum annað. Þessi áherslubreyting hafði í för með sér að á norðurslóðum myndaðist ákveðið valdatómarúm - tómarúm sem hið nýja stórveldi í austri horfir nú hýru auga til. Á árunum 2005-2015 fóru Kínverjar frá því að vera tiltölulega smár keppandi á norðurslóðum í að nálgast þá stærstu. Á meðan flestir aðrir keppendur drógu saman seglin í kjölfar efnahagskrísunnar árið 2008, gátu Kínverjar aukið fjárframlög til hinna ýmsu verkefna tengdum svæðinu og styrkt stöðu sína, en í þessari fjárhagslegu getu liggur helst styrkur þeirra. Það hefur hins vegar reynst þeim erfitt að komast í valdastöður innan hinna ýmsu stofnana sem láta sig málefni norðurslóða varða, enda voru Kínverjar ekki hluti af stofnun þeirra og hafa ekki beint landfræðilegra hagsmuna að gæta.Mismunandi nálgun Allt til janúar 2018 höfðu Kínverjar enga yfirlýsta stefnu í málefnum norðurslóða. Það ber þó ekki að skilja svo að hún hafi ekki verið til fyrr en þá - hún var einfaldlega ekki opinber. Í bók sinni China as a Polar Great Power, heldur fræðikonan Anne-Marie Brady því fram að þar sem Kínverjar eigi ekki nokkurt augljóst tilkall til svæðisins, hafi verið þeim verulega mikilvægt að stjórna umræðunni til að gæta þess að þær þjóðir sem ættu raunverulegt tilkall litu Kína jákvæðum augum. Þetta var hægara sagt en gert og mistókst oft, t.d. þegar kínverska auðkýfingnum Huang Nubo var neitað um að kaupa landsvæði á Íslandi til hóteluppbyggingar. Sem dæmi um tilraunir Kínverja til að stýra umræðunni má nefna að í umfjöllun kínverska dagblaðsins China Daily um ræðu Xi Jinping, sem haldin var á kínversku í Ástralíu árið 2014, kom fram að Kína hefði hug á að stunda rannsóknir á Suðurskautslandinu til að kanna (explore) landsvæðið. Hin raunverulega þýðing var hins vegar á þann veg að Kína hefði hug á að hagnýta (exploit) svæðið. Dagblaðið, sem erlendir fjölmiðlar nýta sér oft til að öðlast innsýn inn í kínversk málefni, gerði sér grein fyrir að slík orðræða gæti komið sér illa yrði hún opinber. Því höfðu þeir kynnst áður, eins og þegar yfirlýsing Yin Zhuo, talsmanns PLA (kínverska hersins), lenti í alþjóðlegum fjölmiðlum árið 2010. Yfirlýsingin var á þann veg að heimsskautasvæðin væru hluti sameiginlegrar arfleifðar mannkyns. Kínverjar væru u.þ.b. 20% mannkyns og ættu því tilkall til 20% þeirra hagsmuna eða auðlinda sem fyrirfyndust á svæðinu. Áhugaverð nálgun, svo ekki sé meira sagt, og töluvert herskárri en sú sem haldið var á lofti svo árum skipti. Líkt og fyrr sagði, gáfu Kínverjar út yfirlýsta stefnu um tilætlanir sínar á norðurslóðum í ársbyrjun 2018. Yfirlýsingin olli töluverðu fjaðrafoki, en í henni kom m.a. fram (þó ekki í fyrsta skipti) að Kína væri nærri-norðurslóðaþjóð (Near-Arctic State). Lýsing sem kemur nokkuð spánskt fyrir sjónir í ljósi þess að nyrsti hluti Kína er jafn nálægur svæðinu og Berlín. Í yfirlýsingunni var einnig staðfest að hinar mögulegu nýju siglingarleiðir um Atlantshafið væru hluti af Ísilagða Silkiveginum (Ice Silk Road) og risastórri samgönguáætlun Kína, Belti og Braut.GettyAð bjóða upp í dans Samskipti milli kínverskra og íslenskra stjórnvalda eru talin nokkuð góð almennt séð. Í október 2018 opnaði t.a.m. kínversk-íslenska norðurljósastofnunin (CIAO) rannsóknarstöð, en hún er samstarfsverkefni íslenskra og kínverskra vísindastofnana og er „miðstöð fyrir vísindamenn sem rannsaka norðurslóðir í alþjóðlegu samstarfi”. Tilætlanir Kínverja hafa ekki farið framhjá Bandaríkjamönnum sem hafa reynt að endurvekja og styrkja umráð sín á norðurslóðunum. Í sumar var greint frá því að Bandaríkjaher muni verja 7 milljörðum króna í uppbyggingu í Keflavík á næstu árum. Þá kom varaforsetinn, Mike Pence, í opinbera heimsókn hingað til lands í september síðastliðnum þar sem hann lét þau ummæli falla að Bandaríkin væru þakklát þeirri afstöðu Íslendinga að hafna innviðafjárfestingum Kínverja hérlendis. Óvarleg ummæli svo ekki sé meira sagt, enda staðfesti utanríkisráðherra samdægurs að Íslendingar væru alls ekki búnir að hafna fjárfestingunum, þó þær hefðu ekki verið samþykktar heldur. Grænlendingar hafa svipaða sögu að segja. Þegar ráðamenn í Washington fréttu að Kínverjar myndu mögulega veita lán fyrir, og sjá um, uppbyggingu tveggja flugvalla í Grænlandi, brugðust þeir hratt við. Samkvæmt Wall Street Journal fólust áhyggjur Bandaríkjamanna í að Grænlendingar gætu átt erfitt með að greiða lánið og að kínversk stjórnvöld myndu mögulega taka yfir flugbrautirnar og nota undir herflugvélar. Bandaríkjamenn settu sig í samband við dönsk stjórnvöld og á endanum samþykktu Grænlendingar lán frá Danmörku til uppbyggingar flugvallanna. Grænlendingar, líkt og aðrar þjóðir á norðurslóðum, þurfa vissulega að stíga varlega til jarðar en ljóst er að það eru tækifæri fólgin í þessum nýju vinsældum. Ekki síst þegar þau tækifæri gætu skapað grundvöll fyrir langþráðu og fullu sjálfstæði.Að lokum Norðurslóðirnar munu gegna verulega þýðingarmiklu hlutverki á komandi árum, ekki síst hvað varðar hnattrænt öryggi. Þar finnast auðlindir sem eiga sér hvergi hliðstæðu í heiminum í dag, hvort sem um er að ræða fæðu-, vatns- eða orkuauðlindir, svo ekki sé minnst á samgöngumöguleika og hernaðarlega staðsetningu. Íslendingar, líkt og aðrar hlutaðeigandi þjóðir, verða að vera fullmeðvitaðir um kapphlaupið sem er að eiga sér stað. Kapphlaupið er löngu hafið og hvort sem okkur líkar það betur eða verr, þá verðum við hluti af því á einn eða annan hátt. Við þurfum að gera okkur grein fyrir hverjir eru að bjóða okkur upp í dans og fyrir virði þeirra viðskiptahagsmuna sem eru í húfi, bæði fyrir samningsaðila okkar og íslensku þjóðina í heild sinni á komandi áratugum.Höfundur er lögfræðingur og stundar framhaldsnám í alþjóðlegri viðskiptalögfræði við Stanford háskóla.Þessi grein er birt í samstarfi við Róm. Rómur er vettvangur fyrir ungt frjálslynt fólk til þess að láta að sér kveða í samfélagsumræðunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kína Norðurslóðir Rómur Sigríður María Egilsdóttir Utanríkismál Mest lesið Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Halldór 14.03.2026 Agnar Már Másson Halldór Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Skerðing í Kópavogi Stefán Vilbergsson skrifar Skoðun Sigurvíma Trump Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Hesturinn í umferðinni Ólafur Gestur Arnalds skrifar Skoðun Hvað er eldsneytið þitt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er ESB „hnignunarbandalag“? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kennsla í skugga skráninga Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur oddviti Framsóknar í Kópavogi að fela? Theodóra Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Loftslagspólitík sem gagnast bændum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Kaþólska kirkjan og uppbygging íslensks heilbrigðiskerfis Árni Már Jensson skrifar Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang skrifar Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir skrifar Skoðun Við erum að taka hlutverkin frá eldra fólki Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar Skoðun Hvernig verjum við Ísland? Finnur Beck skrifar Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Reikniskekkja Viðreisnar í Kópavogi Orri Vignir Hlöðversson skrifar Sjá meira
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun