Dean Smith, knattspyrnustjóri Aston Villa, og John Terry, aðstoðarmaður hans, fóru inn í búningsklefa Liverpool eftir leik liðanna í deildabikarnum í gær og hrósuðu hinum ungu leikmönnum Rauða hersins fyrir góða frammistöðu. Villa vann leikinn, 5-0, og er komið í undanúrslit deildabikarsins.
Liverpool tefldi fram ungu og óreyndu liði í leiknum í gær. Liverpool mætir Monterrey í undanúrslitum heimsmeistaramóts félagsliða í dag og allir fastamenn liðsins eru í Katar þar sem HM fer fram.
Þrátt fyrir stórt tap á Villa Park í gær heilluðu hinir ungu leikmenn Liverpool með góðri spilamennsku. Og eftir leikinn fóru Smith og Terry inn í búningsklefa Villa til að hrósa Liverpool fyrir frammistöðuna.
„Þeir sögðu okkur að halda áfram og óskuðu okkur góðs gengis. Við leikmennirnir munum aldrei gleyma þessu augnabliki,“ sagði Neil Critchley, sem stýrði Liverpool í gær, um heimsókn þeirra Smiths og Terrys í búningsklefann.
Liverpool hefur aldrei teflt fram yngra byrjunarliði í keppnisleik en í gær. Meðalaldur þess var 19 ár og 182 dagar.
Harvey Elliot, sem Liverpool fékk frá Fulham fyrir tímabilið, var sá yngsti í byrjunarliðinu í gær; aðeins 16 ára og rúmlega átta mánaða.
Stjóri Villa fór inn í klefa Liverpool og hrósaði guttunum fyrir frammistöðuna

Tengdar fréttir

„Ótrúlega stoltur af strákunum“
Neil Critchley, þjálfari U23 liðs Liverpool, stýrði Liverpool í 8-liða úrslitum enska deildarbikarsins í fjarveru Jurgen Klopp í kvöld. Hann var gríðarstoltur af frammistöðu liðsins þrátt fyrir 5-0 tap.

Klopp „ekki rétta manneskjan“ til að ræða mannréttindamál Katar
Jurgen Klopp segist ekki vera rétta manneskjan til þess að ræða við um mannréttindamál í Katar, en Liverpool er í Katar um þessar mundir að taka þátt í HM félagsliða.

Fimm ástæður fyrir því af hverju það skiptir miklu máli fyrir Liverpool að vinna HM í Katar
Liverpool hefur í kvöld leik í heimsmeistarakeppni félagasliða í Katar sem hefur aukið álagið talsvert á topplið ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta er samt mikilvæg keppni fyrir Liverpool en aðeins sigurvegarar Meistaradeildarinnar fá að taka þar þátt af liðunum frá Evrópu.

Sá sem situr í stól Klopp í kvöld er með hæstu þjálfaragráðu UEFA
Það verður enginn Jürgen Klopp á hliðarlínu Liverpool í kvöld þegar liðið mætir Aston Villa í átta liða úrslitum enska deildabikarsins. Þetta verður fyrsti leikur aðalliðs Liverpool í fimmtíu mánuði þar sem einhver annar en Klopp stýrir liðinu.

Villa fór illa með strákana í Liverpool
Aston Villa er komið í undanúrslit ensku deildarbikarkeppninnar eftir öruggan sigur á Liverpool í 8-liða úrslitunum.