Lucas Moura, leikmaður Tottenham, hefur beðið nágranna sína afsökunar á að hafa skotið flugeldum á loft á jólanótt.
Brasilíumaðurinn var með gleðskap á heimili sínu á aðfangadagskvöld. Hann stóð yfir langt fram á nótt og klukkan tvö eftir miðnætti var flugeldum skotið á loft.
Nágrannar Moura kvörtuðu undan hávaða og í samtali við The Sun sagðist einn þeirra ekki hafa getað sofnað fyrr en klukkan þrjú.
„Þetta stóð yfir í næstum því klukkutíma. Lætin voru mikil. Þetta var eins og sprengja hefði sprungið á stríðssvæði,“ sagði nágranninn.
Moura baðst afsökunar á látunum og alla þá sem urðu fyrir óþægindum vegna þeirra.
Moura var í byrjunarliði Tottenham í 2-1 sigrinum á Brighton í ensku úrvalsdeildinni á öðrum degi jóla. Spurs mætir Norwich City klukkan 17:30 í dag.
Leikmaður Tottenham biðst afsökunar á flugeldalátum á jólanótt

Tengdar fréttir

Alli tryggði Tottenham endurkomusigur á Brighton
Tottenham komst upp í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Brighton, 2-1.