Ríkiskaup leitast við að leiðrétta rangfærslur um útboð á kynningarherferð Vésteinn Örn Pétursson skrifar 20. maí 2020 23:07 Markaðsátakinu „Ísland – saman í sókn“ er ætlað að kynna Ísland sem ferðamannastað í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Vísir/Villi
Ríkiskaup hafa sent frá sér tilkynningu þar sem því er haldið fram að fjölmiðlaumfjöllun um nýafstaðið útboð kynningarherferðarinnar „Ísland – saman í sókn,“ sem stjórnvöld ákváðu að ráðast í til landkynningar á Íslandi sem ferðamannastaðar á erlendum mörkuðum í kjölfar faraldurs kórónuveiru, feli í sér rangfærslur. Þær rangfærslur telji stofnunin tilefni til þess að leiðrétta. Forsaga málsins er sú að breska auglýsingastofan M&C Saatchi var hlutskörpust í útboði á verkefninu, en íslenska auglýsingastofan Pipar/TBWA varð í öðru sæti útboðsins, en litlu munaði á einkunnum stofnananna í útboðinu. Pipar/TBWA hefur nú kært ríkiskaup vegna ákvörðunarinnar og heldur því fram að M&C Saatchi þurfi ekki að borga virðisaukaskatt á Íslandi. Það þurfi Pipar hins vegar að gera og því hafi ekki verið gætt jafnræðis í útboðinu. Þessu hefur hins vegar verið hafnað af hálfu Ríkiskaupa, sem segja að farið hafi verið fram á við alla bjóðendur að verð í útboðinu yrði gefið upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Í tilkynningu Ríkiskaupa segir að viðmælendur fjölmiðla í dag, sem eru fulltrúar Pipars/TBWA, hafi „vegið alvarlega að heiðri dómnefndar með efasemdum um val í nefndina, heilindi hennar og skort á upplýsingum um bjóðendur fyrir matið á faglegum hluta útboðsins.“ „Eins og Ríkiskaup hafa útskýrt í fjölmiðlum og upplýst er með dæmum á vef fjármála- og efnahagsráðuneytis þá er virðisaukaskattur hlutlaus og hefur ekki áhrif á verðmyndun í útboðum hvort sem hún er keypt innan- eða utanlands. Staðhæfingar um annað eru byggðar á misskilningi,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að gagnrýnt hafi verið að tilboði M&C Saatchi hafi orðið fyrir valinu, vegna frétta um meint bókhaldsbrot fyrirtækisins. Þó sé rétt að geta þess að tilboð í útboðsferlinu hafi verið valin út frá fyrir fram gefnum valforsendum og hæfnikröfum sem fram koma í útboðsgögnum og sækja stoð í íslensk lög. Þær hæfnikröfur hafi M&C Saatchi staðist. Sjá einnig: Leiðinlegt að stærsta verkefnið á markaðnum fari til Bretlands í ójafnri keppni „Ríkiskaupum ber skylda til þess að staðfesta að útilokunarástæður 68. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 eigi ekki við um fyrirtækið áður en endanlegur samningur er gerður. Lögin heimila ekki að ákvarðanir um val á bjóðendum byggi á fréttaflutningi heldur á staðreyndum og staðfestingum opinberra aðila um að bjóðandinn uppfylli hæfiskröfurnar.“ Ríkiskaup eru til húsa í Borgartúni.Vísir/Hanna Segja vegið að heiðri ónefnds dómnefndarmanns Þá segir að í viðtölum við fjölmiðla hafi fulltrúar Pipars/TBWA vegið að heiðri dómnefndarinnar með ásökunum um tengsl ónefnds nefndarmanns við M&C Saatchi. Það hafi verið gefið í skyn að Pipar/TBWA hafi hlotið lægri útboðseinkunn vegna þessara meintu tengsla, sem réði síðan úrslitum við endanlegt val á tilboði. „Þessi staðhæfing er algjörlega tilhæfulaus. Þá hefur nefndur viðmælandi haldið því fram að ef dómnefndin hefði vitað af fyrrnefndri fjölmiðlaumfjöllun um meint brot M&C Saatchi hefði það haft áhrif á einkunnagjöf nefndarinnar. Hlutverk hennar var eingöngu að leggja faglegt mat á kynningar bjóðenda á grundvelli fyrirliggjandi valforsenda. Óheimilt er með öllu að víkja frá því. Slíkt hefði brotið gegn fjölmörgum meginreglum laga um opinber innkaup,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að hlutverk Ríkiskaupa sé að gæta þess að opinberir kaupendur fylgi ákvæðum laga um opinber innkaup og standist þær kröfur sem settar eru fram í útboðsgögnum hverju sinni. Markmið laga um þetta sé að tryggja jafnræði fyrirtækja og stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni. „Í þessu útboði var öllum þessum markmiðum fylgt. Óánægðir bjóðendur hafa vettvang hjá kærunefnd útboðsmála til að fá úr því skorið hvort þeir hafi verið beittir ranglæti eða ekki,“ segir í lok tilkynningarinnar. Hér má nálgast tilkynningu Ríkiskaupa í heild sinni.
Auglýsinga- og markaðsmál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni Viðskipti innlent Hætta rekstri fiskmjölsverksmiðju og tólf missa vinnuna Viðskipti innlent Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Neytendur „Þetta eru auðvitað vonbrigði“ Viðskipti innlent Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Samstarf Kalla inn silung og bleikju vegna listeríu Neytendur Fordæmalaus skortur á skötu Neytendur Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Neytendur Fá grænt ljós á kaupin á Gæðabakstri Viðskipti innlent Kristján lætur af störfum hjá Samherja Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni „Þetta eru auðvitað vonbrigði“ Fá grænt ljós á kaupin á Gæðabakstri Hætta rekstri fiskmjölsverksmiðju og tólf missa vinnuna GK Reykjavík minnkar við sig Minni eignamyndun en fleiri komist í eigið húsnæði með nýrri lausn á markaði Kristján lætur af störfum hjá Samherja Steinar Waage opnar á Akureyri Tekur við stöðu markaðsstjóra Kadeco Möguleiki á að verndaraðgerðirnar verði felldar fyrr úr gildi Sýn fær flýtimeðferð Ístak byggir Fossvogsbrú Fyrirtæki óvenju virk í fasteignakaupum í október Ísbúð Huppu flytur af Nesinu á Ægissíðuna Viðbrögð bankanna eftir vaxtamálið vonbrigði Gera ráð fyrir svipuðum hagvexti og í Covid Íslandsbanki lækkar vexti Óboðlegt að stórir aðilar auki arðsemi í krafti fákeppni Bentu hvor á annan og hlutu ólík örlög Taka minna mark á leiðsögn nefndarinnar og spá lækkunum Fyrrverandi forseti Hæstaréttar fer yfir svör gervigreindarinnar Indó ríður á vaðið Lækkuðu vegna vaxtamálsins: „Lánakjör heimilanna hafa snarlega versnað“ „Aumingjalegt skref“ í rétta átt Fullt tilefni enda hafi aðstæður gjörbreyst á skömmum tíma Svona virka verndaraðgerðir ESB vegna kísilmálms Bein útsending: Rökstyðja lækkun stýrivaxta Seðlabankinn lækkar óvænt stýrivexti Skilja töskur eftir ef von er á kröftugum mótvindi Efnahagslegt tjón lítið ef nokkuð en öll prinsipp þverbrotin Sjá meira