Smíðaði sprengju úr vörum í verslun Walmart Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2020 11:55 Samkvæmt frétt CNN var Stallard með barn með sér þegar hún reyndi að sprengja sprengjuna. Vísir/Fógeti Hillsboroughsýslu/Getty
Emily Stallard gekk inn í verslun Walmart í Flórída á laugardaginn og tók vörur úr hillum, eins og gengur og gerist. Þessar vörur notaði hún þó til þess að smíða sprengju og reyndi hún að sprengja hana. Hún var þó stöðvuð af öryggisverði og lögregluþjóni sem var í versluninni áður en henni tókst að kveikja í sprengjunni. Fógetinn Chad Chronister segir konuna hafa verið búna að sanka að sér öllu sem hún þurfti til að valda gífurlegu manntjóni. Ef öryggisvörðurinn og lögregluþjónninn hefðu ekki orðið varir við hana hefði getað farið illa. Samkvæmt frétt CNN var Stallard með barn með sér þegar hún reyndi að sprengja sprengjuna. Öryggisvörðurinn sá hana þó opna vörur sem hún hafði ekki greitt fyrir og áttaði sig á því hvað hún væri að gera. Hann hringdi á lögregluna og náði í lögregluþjóninn sem hann vissi af í versluninni. Þegar þeir stöðvuðu hana var hún að kveikja á eldspýtu sem hún ætlaði að nota til að kveikja í sprengjunni. Hún var handtekin fyrir ýmsa meinta glæpi og má þar nefna tilraun til íkveikju, barnaníð og brot gegn valdstjórn. Hún hefur ekki verið ákærð enn.
Bandaríkin Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira