Bíó og sjónvarp

Aldrei minna áhorf á Óskarinn í bandarísku sjónvarpi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þrír hinna fjögurra hvítu leikara sem hlutu Óskarinn fyrir besta leik í ár, þau Joaquin Phoenix, Renée Zellweger og Brad Pitt.
Þrír hinna fjögurra hvítu leikara sem hlutu Óskarinn fyrir besta leik í ár, þau Joaquin Phoenix, Renée Zellweger og Brad Pitt. vísir/getty

Aldrei hafa færri bandarískir sjónvarpsáhorfendur stillt inn á beina útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar ABC frá Óskarsverðlaununum en í ár.

Alls horfðu 23,6 milljónir manna á verðlaunahátíðina sem fram fór á sunnudaginn. Þar með var metið frá árinu 2018 um fæsta áhorfendur á Óskarinn slegið en það ár horfðu 26,5 milljón áhorfenda á beina útsendingu frá verðlaununum.

Áhorfið í fyrra fór upp á milli ára en þá horfðu 29,6 milljónir manna á hátíðina í sjónvarpi. Þá var það nýmæli að enginn sérstakur kynnir var á hátíðinni og var það sama uppi á teningnum í ár.

Það skilaði sér hins vegar ekki í fleiri áhorfendum. Það gerðu heldur ekki tilraunir til þess að bjóða upp á fjölbreyttari dagskrá en áður, til dæmis með opnunaratriðinu og óvæntu tónlistaratriði Eminem, að því er fram kemur í umfjöllun Indiewire um málið.

Óskarsverðlaunin voru í aðdraganda verðlaunahátíðarinnar gagnrýnd mikið fyrir einmitt skort á fjölbreytileika.

Gagnrýnin beindist ekki hvað síst að tilnefningum í leikara- og leikkonuflokkum þar sem allir tilnefndir voru hvítir fyrir utan Cynthiu Erivo, og tilnefningum í leikstjóraflokknum þar sem engin kona hlaut tilnefningu.

Burtséð þó frá áhorfstölum og skorti á fjölbreytileika má nánast fullyrða að 92. Óskarsverðlaunin verði lengi í minnum höfð hjá íslensku þjóðinni þar sem Hildur Guðnadóttir, tónskáld, varð á sunnudaginn fyrsti Íslendingurinn til að hljóta þessi eftirsóttu verðlaun. Hún hlaut styttuna góðu fyrir tónlist sína við kvikmyndina Joker.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.