Halda „óvinalista“ um embættismenn innan Trump-stjórnarinnar Kjartan Kjartansson skrifar 24. febrúar 2020 13:15 Trump forseti er þekktur fyrir að meta persónulega hollustu við sig ofar öllu öðru. Hann hefur lengið talað um vilja sinn til að hreinsa það sem hann kallar vont fólk út úr ríkisstjórn sinni. Vísir/Getty
Hvíta húsið og bandamenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta hafa tekið saman lista yfir embættismenn sem þeir telja ekki nægilega húsbóndaholla Trump persónulega og vilja láta reka. Eiginkona íhaldssams hæstaréttardómara er á meðal þeirra sem hafa grafið undan embættismönnum við forsetann. Eftir að öldungadeild Bandaríkjaþings sýknaði Trump forseta af kæru fulltrúadeildarinnar um embættisbrot fyrr í þessum mánuði hefur verið rætt um að forsetinn sé haldinn þráhyggju um að ryðja „slæmu fólki“ úr vegi innan ríkisstjórnar hans. Hann hefur þegar látið hreinsa fjölda embættismanna úr stjórninni, sérstaklega í þjóðaröryggis- og leyniþjónustugeiranum. New York Times segir þannig að tugir þjóðaröryggissérfræðinga hafi verið látnir fara sem þýði að færri ópólitískir embættismenn komi nálægt forsetanum en áður. Johnny McEntee, 29 ára gamall fyrrverandi persónulegur aðstoðamaður Trump, var nýlega skipaður yfirmaður starfsmannamála Hvíta hússins. Hann hefur fyrirskipað að pólitískar skipanir verði frystar tímabundið og beðið ráðuneyti um að þefa uppi embættismenn sem eru ekki hliðhollir forsetanum til að hægt verði að reka þá. Ráðherrar fái ekki lengur að velja sér næstráðendur sína heldur muni Hvíta húsið handvelja þá. Johnny McEntee (lengst til hægri) er nýr yfirmaður starfsmannamála í Hvíta húsinu. Hann er 29 ára gamall fyrrverandi persónulegur aðstoðarmaður Trump og er lýst sem algerlega húsbóndahollum forsetanum.Vísir/EPA Kona Thomas hæstaréttardómara með puttana í starfsmannamálunum Nánustu bandamenn forsetans hafa þó undirbúið sig fyrir hreinsanir mun lengur, meðal annars með því að taka saman lista yfir „ótrúa“ embættismenn til að reka og húsbóndaholla stuðningsmenn Trump sem mætti ráða í staðinn. Trump er þekktur fyrir að setja persónulega hollustu við hann ofar öllu öðru. Hann hefur ítrekað sakað bandaríska embættismenn sem hann telur ekki nógu undirgefna sér um að vera hluti af svonefndu „djúpríki“, embættismannakerfi sem grafi undan honum. Bandaríska fréttasíðan Axios fullyrðir að Hvíta húsið og bandamenn þess hafi unnið að listum sem þessum undanfarna átján mánuði. Trump forseta hafa verið send minnisblöð með tillögum um hverja hann ætti að ráða og reka. Á meðal þeirra sem hafa tekið saman lista sem þessa er Undiraldan [e. Groundswell], hópur vel tengdra íhaldssamra aðgerðasinna með náin tengsl við Trump og háttsetta embættismenn ríkisstjórnar hans. Ginni Thomas, eiginkona Clarence Thomas, hæstaréttardómara, er sögð í þeim hópi. Thomas er sögð hafa varið umtalsverðum tíma og orku í að hvetja stjórn Trump til að hrista upp í starfsmannamálum sínum. Samtökin sem hún tekur þátt í að stýra eru sögð hafa átt frumkvæðið af því að bola burt H.R. McMaster, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump árið 2018. Ginni Thomas (3.f.v.) við hlið eiginmanns síns Clarence Thomas við minningarathöfn um Antonin Scalia heitinn árið 2016.Vísir/EPA Fékk minnisblað í hendur um saksóknara Minnisblöð aðgerðasinnanna hafa þegar bundið enda á feril embættismanna. Á meðal þeirra er Jessie Liu, fyrrverandi alríkissaksóknari í Washington. Til stóð að Trump tilnefndi hana til að hafa umsjón með hryðjuverkamálum innan fjármálaráðuneytisins. Trump ákvað hins vegar að hætta við að tilnefna hana eftir að hún var búin að segja af sér saksóknaraembættinu. Axios segir að skömmu áður en Trump ákvað að kasta Liu út í kuldann hafi hann fengið minnisblað um meintar misgjörðir hennar sem hafði mikil áhrif á hann. Barbara Ledeen, starfsmaður þingflokks repúblikana í öldungadeildinni, er sögð hafa skrifað minnisblaðið. Það sem Liu hafði sér til saka unnið var fyrst og fremst að ganga ekki nægilega hart fram sem saksóknari gegn þeim sem Trump og bandamenn hans telja andstæðinga sína. Henni var fundið til foráttu að hafa ekki sótt til saka konur sem sökuðu Brett Kavanaugh, hæstaréttardómara, um kynferðisbrot þegar fjallað var um skipan hans við réttinn í fyrra eða Andrew McCabe, fyrrverandi aðstoðarforstjóra alríkislögreglunnar FBI. Einnig var það að Liu hefði gefið vilyrði fyrir því að saksóknarar krefðust fangelsisrefsingar yfir Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump, og að hún hefði vísað frá ákærum á hendur mótmælendum við embættistöku Trump sagt sýna fram á að hún væri ekki starfi sínu vaxin. Það gerði endanlega út um starfshorfur Liu er talið hafa verið að mál gegn Roger Stone, persónulegum vini og ráðgjafa Trump forseta, var höfðað þegar hún stýrði alríkissaksóknaraembættinu í Washington. Joseph Maguire hefur verið starfandi yfirmaður leyniþjónustumála. Trump varð honum æfareiður á dögunum þegar hann frétti að fulltrúi Maguire hefði upplýst þingmenn um áframhaldandi kosningaafskipti Rússa.Vísir/Getty Embættismenn uggandi Hreinsanir undanfarinna daga eru sögð hafa skotið embættismönnum skelk í bringu. Joseph Maguire, starfandi yfirmaður leyniþjónustunnar, fékk reiðilestur frá Trump forseta þegar hann komst að því að fulltrúi Maguire hefði upplýst þingmenn um að Rússar reyndu nú aftur að hjálpa Trump að ná kjöri í forsetakosningum sem fara fram í haust. Í kjölfarið ákvað Trump að tilnefna Maguire ekki varanlega sem yfirmann leyniþjónustumála og velja frekar Richard Grenell, sendiherra í Þýskalandi sem hefur verið einarður stuðningsmaður forsetans. Meðferðin á Maguire varð William McRaven, fyrrverandi flotaforingja sem stýrði aðgerðum þegar bandarísk sérsveit drap hryðjuverkaleiðtogann Osama bin Laden, tilefni til að skrifa grein í Washington Post um helgina þar sem hann sagði að ástæða væri til að óttast ef „góðir menn eins og Maguire“ mættu ekki segja sannleikann. Saksóknarar sem heyra undir dómsmálaráðuneytið eru einnig uggandi vegna pólitískra afskipta. Fjórir þeirra sem stýrðu saksókn gegn Roger Stone sögðu sig frá málinu eftir að William Barr, dómsmálaráðherra, greip fram fyrir hendurnar á þeir um refsikröfu í málinu. Ákvörðun Barr um að krefjast mildari refsingar yfir Stone en saksóknararnir lögðu upp með kom aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Trump tísti um málið. Áður hafði Trump rekið tvo embættismenn sem báru vitni í rannsókn fulltrúardeildar þingsins á meintum embættisbrotum hans sem vörðuðu þrýsting á úkraínsk stjórnvöld að rannsaka pólitískan keppinaut forsetans. Alexander Vindman, sérfræðingur þjóðaröryggisráðsins um Úkraínu, var leiddur út úr Hvíta húsinu í fylgd öryggisvarða daginn eftir að repúblikanar í öldungadeildinni sýknuðu Trump. Vindman hafði borið vitni um símtal Trump við Volodýmýr Zelenskíj, forseta Úkraínu, sem hann taldi hafa verið óviðeigandi. Tvíburabróðir Vindman, sem kom hvergi nærri rannsókninni, var einnig rekinn úr starfi í Hvíta húsinu á sama tíma. Sama dag lét Trump kalla Gordon Sondland, sendiherra gagnvart Evrópusambandinu, heim. Sondland bar vitni við rannsóknina og lýsti samskiptum sem hann átti við úkraínska embættismenn fyrir hönd Trump. Hann hefur fram að þessu verið talinn dyggur stuðningsmaður forsetans.
Ákæruferli þingsins gegn Trump Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Vinur Trump dæmdur í rúmlega þriggja ára fangelsi Trump forseti hafði sett mikinn þrýsting á dómsmálaráðuneytið, dómara og saksóknara vegna máls vinar sína, Rogers Stone. Saksóknarar sem fóru upphaflega með málið sögðu sig frá því vegna inngrips ráðuneytisins í síðustu viku. 20. febrúar 2020 17:52 Enn gustar um dómsmálaráðuneyti eftir stormasama viku Fréttir bárust af nokkrum pólitískum eldfimum málum sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur rannsakað í gær í lok viku þar sem efast hefur verið um sjálfstæði ráðuneytisins gagnvart pólitískum þrýstingi Trump forseta. 15. febrúar 2020 10:09 Fyrrum starfsmenn ráðuneytisins krefjast afsagnar dómsmálaráðherra Yfir ellefu hundruð fyrrverandi starfsmenn bandaríska dómsmálaráðuneytisins sendu frá sér yfirlýsingu í dag. 16. febrúar 2020 20:58 Ötull stuðningsmaður Trump settur yfir leyniþjónustuna Bandaríkjaforseti er sagður ætla að tilnefna sendiherra Bandaríkjanna í Þýskalandi sem starfandi yfirmann leyniþjónustunnar sem hann hefur ítrekað skotið fast á. 19. febrúar 2020 23:34 Trump trompaðist yfir leynilegum fundi um kosningaafskipti Rússa Bandaríkjaforseti er sagður hafa úthúðað Joseph Maguire, starfandi yfirmanni leyniþjónustunnar, fyrir að hafa leyft fulltrúa sínum að upplýsa þingmenn um áframhaldandi kosningaafskipti Rússa. Það hafi orðið til þess að Trump ákvaða að ganga fram hjá Maguire við varanlega skipan í embættið. 20. febrúar 2020 22:45 Saksóknarar uggandi yfir pólitískum þrýstingi frá Trump Ákvörðun bandaríska dómsmálaráðuneytisins um að taka fram fyrir hendurnar á saksóknurum í dómsmáli gegn vini Trump forseta dregur dilk á eftir sér. 13. febrúar 2020 11:00 Hömlulausi forsetinn: Engin bönd halda Trump lengur Í kjölfar þess að Trump var sýknaður af ákærum vegna meintra embættisbrota hefur hann farið hart fram gegn óvinum sínum, raunverulegum og ímynduðum. Þeir sem stóðu í hárinu á forsetanum til að byrja með hafa að miklu leyti yfirgefið sviðið og Repúblikanaflokkinn. 11. febrúar 2020 16:15 Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Erlent Bein útsending: Daði Már gangsetur vindmyllur Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Fleiri fréttir Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Sjá meira
Vinur Trump dæmdur í rúmlega þriggja ára fangelsi Trump forseti hafði sett mikinn þrýsting á dómsmálaráðuneytið, dómara og saksóknara vegna máls vinar sína, Rogers Stone. Saksóknarar sem fóru upphaflega með málið sögðu sig frá því vegna inngrips ráðuneytisins í síðustu viku. 20. febrúar 2020 17:52
Enn gustar um dómsmálaráðuneyti eftir stormasama viku Fréttir bárust af nokkrum pólitískum eldfimum málum sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur rannsakað í gær í lok viku þar sem efast hefur verið um sjálfstæði ráðuneytisins gagnvart pólitískum þrýstingi Trump forseta. 15. febrúar 2020 10:09
Fyrrum starfsmenn ráðuneytisins krefjast afsagnar dómsmálaráðherra Yfir ellefu hundruð fyrrverandi starfsmenn bandaríska dómsmálaráðuneytisins sendu frá sér yfirlýsingu í dag. 16. febrúar 2020 20:58
Ötull stuðningsmaður Trump settur yfir leyniþjónustuna Bandaríkjaforseti er sagður ætla að tilnefna sendiherra Bandaríkjanna í Þýskalandi sem starfandi yfirmann leyniþjónustunnar sem hann hefur ítrekað skotið fast á. 19. febrúar 2020 23:34
Trump trompaðist yfir leynilegum fundi um kosningaafskipti Rússa Bandaríkjaforseti er sagður hafa úthúðað Joseph Maguire, starfandi yfirmanni leyniþjónustunnar, fyrir að hafa leyft fulltrúa sínum að upplýsa þingmenn um áframhaldandi kosningaafskipti Rússa. Það hafi orðið til þess að Trump ákvaða að ganga fram hjá Maguire við varanlega skipan í embættið. 20. febrúar 2020 22:45
Saksóknarar uggandi yfir pólitískum þrýstingi frá Trump Ákvörðun bandaríska dómsmálaráðuneytisins um að taka fram fyrir hendurnar á saksóknurum í dómsmáli gegn vini Trump forseta dregur dilk á eftir sér. 13. febrúar 2020 11:00
Hömlulausi forsetinn: Engin bönd halda Trump lengur Í kjölfar þess að Trump var sýknaður af ákærum vegna meintra embættisbrota hefur hann farið hart fram gegn óvinum sínum, raunverulegum og ímynduðum. Þeir sem stóðu í hárinu á forsetanum til að byrja með hafa að miklu leyti yfirgefið sviðið og Repúblikanaflokkinn. 11. febrúar 2020 16:15