Ísland langdýrast í Evrópu Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. mars 2020 07:53 Fatnaður er eitt af því sem er dýrast á Íslandi. Vísir/Vilhelm
Verðlag hér á landi var árið 2018 66 prósent hærra en að meðaltali í öðrum löndum Evrópu, samkvæmt endurskoðuðum tölum frá Hagstofu Evrópu, Eurostat. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. Heilbrigðisþjónusta og menntun eru á meðal þess sem er dýrast hér á landi samkvæmt hinum endurskoðuðu tölum. Löndin sem tekin eru með í samanburði Eurostat á neysluútgjöldum heimila eru 36 Evrópulönd, þar af ESB-löndin og EFTA-löndin Ísland, Noregur og Sviss. Þegar samanburðurinn var fyrst birtur í júní í fyrra var verðlag á Íslandi hæst, eða 56 prósent hærra en meðaltalið í löndum á evrópska efnahagssvæðinu. Endurskoðaðar tölur, sem birtar voru á vef Norsku hagstofunnar í liðinni viku, sýna fram á töluverða hækkun. Verðlag á Íslandi er, samkvæmt þeim, nú 66 prósent hærra en umrætt meðaltal. Verðlag er næsthæst í Sviss, Noregi og Lúxemborg. Þegar útgjaldaliðir eru bornir saman sést að matur og drykkur er dýrastur í Noregi, eða 63 prósent yfir meðaltali. Þar á eftir kemur Sviss og næst Ísland, sem er 48 prósentum yfir meðaltali. Áfengi er einnig dýrast í Noregi og næstdýrast á Íslandi. Heilbrigðisþjónusta er hins vegar dýrust á Íslandi, eða 131 prósent yfir meðaltali, sem og menntun, eða 106 prósent yfir meðaltali. Þá eru veitingastaðir, hótel og fatnaður einnig dýrust á Íslandi. Endurskoðaðar tölur Eurostat má nálgast hér.
Efnahagsmál Evrópusambandið Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira