Samfélagsmiðilinn Twitter hefur greint frá því hvernig brugðist verður við því muni einhver frambjóðandi í forseta- og þingkosningunum í Bandaríkin lýsa yfir sigri áður en skýrar niðurstöður þess efnis liggi fyrir.
Einkum hefur verið horft til Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í þessum efnum. Fjölmiðlar þar í landi hafa sagt frá því að forsetinn hafi fullyrt við nánustu bandamenn sín að hann ætli sér að lýsa yfir sigri í nótt ef útlit verður fyrir að hann sé með forskot.
Varað hefur verið við því að fyrstu tölur sem berist úr kjörkössum geti verið villandi, sökum gríðarlegs fjölda póstatkvæða. Ríki Bandaríkjanna hafa mismunandi lög og reglur um hvenær megi byrja að telja slík atkvæði, og því geti fyrstu niðurstöður breyst eftir því sem líður á nóttina.
Twitter hefur gefið út að það muni bregðast við ótímabærum siguryfirlýsingum í forsetakosningunum og öðrum kosningum sem haldnar eru í Bandaríkjunum í dag þar sem mjótt er á mununum og erfitt að skera úr um hver hafi betur án þess að mikill meirihluti atkvæða hafi verið talinn.
Reglurnar gilda meðal annars um framjóðendurnar tvo, Trump og Joe Biden, og framboð þeirra. Reglurnar gilda einnig um tíst vinsælla stuðningsmanna frambjóðendanna, nái viðkomandi tíst mikilli útbreiðslu.
Tweets are eligible to be labeled if:
— Twitter Support (@TwitterSupport) November 2, 2020
1. The account has a US 2020 candidate label (including presidential candidates & campaigns)
2. The account is US-based with more than 100k followers, or
3. They have significant engagement (25k likes or 25k Quote Tweets + Retweets).
Þannig hyggst Twitter merkja slík tíst sérstaklega með merkimiða þannig að notendur geti séð að umrætt tíst sé annað hvort villandi eða standist ekki skoðun, en umrædda merkimiða má sjá á myndinni efst í fréttinni.
Þá munu notendur sem reyna að breiða út tíst sem Twitter hefur merkt sérstaklega á þann hátt fá aðvörun um að umrætt tíst hafi verið merkt og hvatningu um að kynna sér málin betur.
Twitter hefur einnig gefið út að til þess að samfélagsmiðilinn taki mark á siguryfirlýsingu frambjóðanda þurfi embættismaður kjörstjórnar að hafa lýst því að viðkomandi frambjóðandi hafi unnið í viðkomandi ríki, eða tveir af sjö nafngreindum fjölmiðlum hafi lýst því yfir að viðkomandi frambjóðandi hafi borið sigur úr býtum.
We’ll consider a result official when announced by a state election official, or when calls are made by at least two of the below national news outlets that have dedicated, independent election decision desks:@ABC@AP@CBSNews@CNN@DecisionDeskHQ@FoxNews@NBCNews
— Twitter Support (@TwitterSupport) November 2, 2020