Dýrmæt þjónustutækifæri enn til staðar í Boðaþingi Hálfdán Henrýsson, María Fjóla Harðardóttir og Sigurður Garðarsson skrifa 9. febrúar 2021 11:29 Fyrir um 20 árum síðan tóku Kópavogsbær og Sjómannadagsráð upp samstarf um skipulag nýs hverfis í Boðaþingi. Meginhugmyndin var að skipuleggja þétta byggð sem sérstaklega yrði skipulögð með þarfir eldra fólks í Kópavogi í huga og varð afraksturinn nýtt deiliskipulag sem bærinn samþykkti árið 2005 með þjónustumiðstöð, hjúkrunarheimili, öryggisíbúðum ogalmennum íbúðum fyrir 50 ára og eldri. Ætlunin var að reyna að skapa þétta byggð með nauðsynlegri þjónustu og félagsstarfi fyrir eldra fólk í nærumhverfi sínu og gerðu hugmyndirnar ráð fyrir að Hrafnista myndi annast rekstur hjúkrunarheimilisins og kæmi auk þess að rekstri ákveðinnar þjónustu í þjónustumiðstöðinni, sem síðar fékk nafnið Boðinn. Eftir 2005, þegar deiliskipulagið hafði verið samþykkt, þróuðust hugmyndirnar um byggðina frekar í meðförum Kópavogsbæjar, Hrafnistu og Naustavarar og var deiliskipulagið aðlagað að þeim í kringum 2009 með meðal annars veglegri þjónustumiðstöð með sundlaug sem Kópavogsbær tók að sér rekstur á, 88 rýma hjúkrunarheimili sem ríkið og Kópavogsbær byggðu og fólu Hrafnistu rekstur þegar framkvæmdir hófust á fyrri áfanga þess með 44 rýmum. Þegar deiliskipulagið hafði verið fullþróað seldi Kópavogsbær Sjómannadagsráði byggingarrétt að lóðinni við Boðaþing 22-24, þar sem Naustavör byggði síðar fjölbýli með 95 leiguíbúðum. Jafnframt hóf Sjómannadagsráð undirbúning að byggingu Boðans og hjúkrunarheimilisins í samstarfi við ríkið og fagfólk Hrafnistu og Naustavarar. Það varð til þess að þetta glæsilega hjúkrunarheimili var tekið í notkun fyrir 10 árum síðan ásamt þjónustumiðstöð og leiguíbúðunum og eru byggingarnar þrjár samtengdar til að auðvelda íbúum og leigjendum aðgang að þjónustunni. Allri þessari starfsemi var komið á fót hratt og örugglega þrátt fyrir þá ringulreið sem ríkti í samfélaginu eftir bankahrunið sem skall á 2008. Hrafnista í Boðaþingi. Góð aðstaða Aðstaðan í Boðaþingi er mjög góð í rólegu og friðsælu umhverfi í næsta nágrenni Elliðavatns. Í sambyggðri þjónustumiðstöðinni, Boðanum, fer fram ýmis starfsemi, s.s. dagdvöl Hrafnistu, tómstundir og afþreying ásamt rekstri sundlaugar, sem Sjómannadagsráð rak fyrstu árin samkvæmt sérstöku samkomulagi að ósk bæjarfélagsins. Hún er í dag bæði almenn laug fyrir eldri borgara og skólasundlaug auk þess sem þar fara fram sundnámskeið á vegum einkaaðila fyrir börn og fullorðna. Boðinn gegnir lykilhlutverki Í fjölbýli Naustavarar eru 95 sérhannaðar íbúðir fyrir eldra fólk sem nýtur greiðs aðgangs um undirgöng að þjónustu Boðans, sem gegnir öðrum þræði hlutverki félagsmiðstöðvar íbúa hjúkrunarheimilisins og eldri borgara í Boðaþingi og nágrannahverfunum í Kópavogi. Þar er notaleg aðstaða til að setjast niður og ræða málin yfir kaffibolla og meðlæti, lesa blöðin eða taka þátt í þeim dagskrárliðum sem í boði eru alla virka daga og njóta hádegisverðar með vinum og kunningjum. Vísir að góðum lífsgæðakjarna Þessi fjölbreytileiki og samþætting gerir að verkum að heimilismenn og eldri íbúar í nærumhverfinu geta notið þjónustunnar í Boðaþingi sem við hjá Hrafnistu og Sjómannadagsráði viljum kalla vísi að góðum lífsgæðakjarna á borð við þann sem tekinn er til starfa við Sléttuveg í Fossvogi. Við segjum „vísir að góðum lífsgæðakjarna“ því að okkar mati er enn nokkuð í land til að kjarninn í Boðanum standi undir þeirri getu og væntingum sem gera þarf til lífsgæðakjarna á borð við starfsemina sem Hrafnista starfrækir við Sléttuveg fyrir Reykjavíkurborg. Hjá Sjómannadagsráði ríkir mikill vilji til að auka starfsemi og fjölbreytni þjónustunnar í Boðanum í þágu íbúa hjúkrunarheimilisins og eldri íbúa Kópavogs. Dæmi um viðbætur sem Sjómannadagsráð leggur áherslu á eru rekstur verslunar og kaffihúss, heilsuræktar og ýmissa annarra kosta sem mæta þörfum og óskum þeirra sem sækja þjónustu og afþreyingu í Boðaþingið. Sjómannadagsráð hefur áratugalanga reynslu af rekstri þjónustuþátta sem eru sérsniðnir að þörfum hagsmunahópsins og hefur áður líst sig tilbúið til að taka að sér rekstur Boðans með samningi við bæjaryfirvöld. Síðari áfangi hjúkrunarheimilisins Í lok árs 2016 var undirritað samkomulag ríkis og Kópavogsbæjar um stækkun hjúkrunarheimilisins um 64 rými og stóð þá til að starfsemin hæfist 2018. Þrátt fyrir ítrekaða eftirfylgni frá 2016 til að þoka málum áfram um stækkun heimilisins gerðist lítið fyrr en í nóvember síðastliðnum þegar ríki og bær undirrituðu nýtt samkomulag sama efnis og 2016 sem gerir ráð fyrir að starfsemi í síðari áfanganum hefjist 2024. Alla tíð frá aldamótum hefur Sjómannadagsráð lagt krafta sína í það að berjast fyrir fullbúnu hjúkrunarheimili í Boðaþingi. Fyrri áfangi þess með aðeins 44 rýmum hefur nú verið í notkun í áratug, en heimilið er þungt í rekstri og ekki nægilega stórt til að styðja við aðra þjónustu í Boðanum. Sjómannadagsráð bindur vonir við að með tilkomu síðari áfanga hjúkrunarheimilisins verði hægt að halda áfram á þeirri þróunarbraut sem upphaflega var lagt af stað með, í góðu samstarfi við ríkið og Kópavogsbæ. Hálfdan Henrýsson, formaður Sjómannadagsráðs María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Húsnæðismál Eldri borgarar Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar