Launahækkun og þriggja milljóna króna eingreiðsla til Bjarna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. mars 2021 08:46 Bjarni Bjarnason, forstjóri OR. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, er með tæplega 2,9 milljónir á mánuði í laun eftir fimmtán prósent launahækkun sem tók gildi um mánaðamótin.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu þar sem vísað er til þess að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hafi veitt hækkunina að undangengnu mati á frammistöðu Bjarna í starfinu. Laun hans fyrir hækkun voru 2,5 milljónir króna á mánuði. Fram kemur í Fréttablaðinu að Bjarni fái sömuleiðis eingreiðslu upp á þrjár milljónir króna þar sem launakjör hans hafi ekki verið uppfærð í tvö ár, eins og segir í samþykkt stjórnarinnar. Í Fréttablaðinu kemur fram að Orkuveita Reykjavíkur hafi fengið endurskoðunarfyrirtækið PWC til að vinna fyrir sig könnun um laun forstjóra og aðalframkvæmdastjóra hjá stóriðju- og veitustarfsemi annars vegar og hjá fyrirtækjum með yfir fjörutíu milljarða króna í veltu hins vegar. Könnunin hafi náð til 24 fyrirtækja og reyndust heildarlaun þess hóps að meðaltali tæplega 4,2 milljónir króna á mánuði árið 2020. Bjarni var ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur í febrúar árið 2011 og hefur því sinnt starfinu í tíu ár.
Kjaramál Orkumál Reykjavík Vinnumarkaður Mest lesið Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Sjá meira